Formaður KR segir félagið harma alvarlegt atvik sem upp kom milli þjálfara KR og Gróttu á fundi Sundsambands Íslands í gær. Í yfirlýsingu frá Sunddeild KR, sem Þórhildur Garðarsdóttir formaður skrifar undir, segir að lögregla hafi brugðist skjótt við.
Í yfirlýsingu frá formanni KR segir að fjölmiðlar hafi fjallað um málið í dag, en Vísir greindi frá því að sundþjálfari hjá KR hafi dregið upp hníf fyrir utan fund Sundsambandsins og ógnað þjálfara Gróttu. Samkvæmt heimildum Vísis hafi verið fjallað um eftirför og handtöku mannsins í dagbók lögreglu.
Í yfirlýsingu KR segir að málið sé í vinnslu hjá samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs, og hjá lögreglu. Telji einhverjir sig þurfa aðstoð vegna afleiðinga málsins geti þeir haft samband við samskiptaráðgjafa.
„Forsvarsfólk KR, Gróttu og Sundsambands Íslands er í samskiptum við samskiptaráðgjafa varðandi málið og mun ekki tjá sig um það við fjölmiðla. Málið er á afar viðkvæmu stigi og mikilvægt að við hlúum hvert að öðru.“