Þórhildur Garðarsdóttir, formaður KR, hefur birt yfirlýsingu á Facebook-síðu félagsins þar sem harmað er atvik sem gerðist í húsakynnum ÍSÍ við Engjateig. Fjölmiðlar hafa greint frá því í dag að sundþjálfari KR hafi ógnað sundþjálfara Gróttu með hnífi. Gerðist það í kjölfar þess að þjálfari KR hafði ráðist á hann. „Hann er sagður hafa haft sundþjálfara Gróttu undir og látið höggin dynja á honum þannig að á honum sá,“ segir í frásögn mbl.is af atvikinu.
Formaður KR harmar líkamsárás sundþjálfara liðsins á sundþjálfara Gróttu