Í færslunni sem hann birti á miðlinum Truth Social segist hann hafa náð að vinna með ráðamönnum í Danmörku til að tryggja að Bandaríkin muni að eilífu hafa fulla getu til að gera það sem nauðsynlegt er á Grænlandi til að tryggja og verja öryggi Grænlands.
„Þar að auki getur enginn andstæðingur Bandaríkjanna héðan í frá nokkurn tíma haft herstöð á Grænlandi,“ skrifar hann einnig í færslunni. Þar segir hann samninginn uppfylla að fullu öll þau áhyggjuefni sem Bandaríkjamenn hafi haft.
„Við munum þegar í stað hefja ferlið við að koma á fót mikilli hernaðarviðveru á viðkomandi svæði á Grænlandi, þar sem mörg hentug svæði eru. Við munum vinna með íbúum Grænlands að þróun og uppbyggingu,“ skrifar hann.
Lausnin sé góð fyrir bæði Danmörku, Grænland, Bandaríkin og alla bandamenn landanna.
Fréttin verður uppfærð.