Rúmlega 130 milljarðar fara til Landspítalans á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Framlög aukast um rúma átta og hálfan milljarð milli ára. Þrátt fyrir þetta telur Runólfur Pálsson forstjóri spítalans að mögulega þurfi að grípa til hagræðingar.
„Eins og þetta horfir við í dag þá liggur fyrir að við þurfum að hagræða að einhverju marki. Möguleg sem nemur allt að tveimur milljörðum. Og það útaf fyrir sig er bara þungt fyrir okkur vegna þess að við erum að reyna að þróa Landspítala sem háskólasjúkrahús. Halda í við háskólasjúkrahús meðal nágrannaþjóða,“ segir Runólfur.
Hann segir að möguleg hagræðing hafi ekki áhrif á þjónustu við sjúklinga.
„Við reynum alltaf að tryggja þjónustu við sjúklinga. Eins og ég hef margítrekað sagt að sjúkrahúsið hefur svo mörg önnur hlutverk. Þó að þjónustan við sjúklinga sé alltaf í fyrirrúmi og við tryggjum hana. Alveg sama hvað á dynur,“ segir Runólfur.
Alma Möller heilbrigðisráðherra segir horft á ýmsa þætti innan heilbrigðiskerfisins til að ná aðhaldmarkmiðum ríkisstjórnarinnar.
„Sérstaklega opinber innkaup og ýmislegt því tengt til að ná hagræðingu þar. Það er líka reiknað með að fækka starfsfólki sem ekki er í framlínuþjónustu,“ segir Alma.