Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12.
Karlmaður sem vistaður var í fangelsinu á Hólmsheiði lést í nótt. Ragna Bjarnadóttir fangelsismálastjóri staðfestir það við fréttastofu en segist ekki geta greint nánar frá tildrögum andláts.
Fimm menn voru í gær úrskurðaðir í tíu daga gæsluvarðhald í kjölfar þess að upp komst að þeir hefðu tekið þátt í innflutningi mikils magns fíkniefna. Handtökur fóru fram í Reykjavík og Hveragerði.
Formaður Kennarasamband Íslands fagnar nýrri skýrslu um álag og starfsaðstæður í grunnskólum. Bregðast þurfi við ákalli um betri stuðning við kennara frá sveitarfélögum og þá hafi kröfur um þátttöku skóla i uppeldi barna aukist.
Formaður Þroskahjálpar segir vonbrigði hversu lítið tillit velferðarnefnd Alþingis tók til ábendinga samtakanna í tengslum við gerð frumvarps um réttindavernd fatlaðs fólks. Með niðurlagningu undanþágunefndar sé afgreiðslu mála er varðar beitingu nauðungar hraðað á kostnað fagmennsku.
Yfir fjögur hundruð hafa verið handteknir í Frakklandi í kjölfar þess að lið Paris Saint-German vann Englandsmeistara Arsenal í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í gærkvöld.
Í íþróttafréttum verður fjallað um landsleik íslenska karlalandsliðsins í fótbolta gegn Japan og handtöku körfuboltakappans og Íslandsmeistarans DeAndre Kane.