Handboltakonan Perla Ruth Albertsdóttir hefur framlengt samning sinn við uppeldisfélag sitt Selfoss.
Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum en Perla, sem er 29 ára gömul, hefur einnig leikið með Fram hér á landi.
Selfoss hafnaði í neðsta sæti úrvalsdeildarinnar á nýliðnu keppnistímabili og leikur því í 1. deildinni á komandi keppnistímabili.
Hún hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinuu ndanfarin ár en hún eignaðist sitt annað barn á síðasta ári og kom því lítið við sögu á nýliðnu tímabili.