Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út fyrr í dag þar sem hún var fengin til að aðstoða lögregluna á höfuðborgarsvæðinu við leit í Vesturbænum.
Þetta segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, við mbl.is.
Leitinni hefur nú verið lokið en ekki var hægt að gefa upp frekari upplýsingar.
Fréttin hefur verið uppfærð.