Tilkynnt var um eldinn skömmu eftir hálf níu í morgun. Varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins hafði ekki upplýsingar um annað en að ökumaður bílsins hefði komist klakklaust út úr honum.
Töluverð umferðarteppa hefur myndast á Reykjanesbraut nærri Smáralind vegna óhappsins. Varðstjóri slökkviliðs sagði að slökkviliðsmenn yrðu snöggir að ráða niðurlögum eldsins.