Kvikmyndagerðarmaður og grunnskólakennari selur fallega íbúð

Falleg og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á fyrsta hæð við Sólvallagötu 29 í Vesturbæ Reykjavíkur er komin á sölu. Um er að ræða 113,4 fermetra eign í húsi sem reist var árið 1927 og er staðsett á einum eftirsóttasta stað borgarinnar, skammt frá miðbænum.
Það eru þau Ari Birgir Ágústsson og Ásbjörg Einarsdóttir sem eru að selja íbúðina en Ari hefur meðal annars starfað við kvikmyndir á borð við Snertingu og Godland og þáttaraðirnar Ráðherrann og Ófærð. Hann starfar einnig sem grunnskólakennari. Ásbjörg starfar sem verkfræðingur hjá Icelandair.
Íbúðin er björt og rúmgóð með góðri lofthæð sem setur svip sinn á eignina. Skipulag hennar samanstendur af holi, eldhúsi, tveimur samliggjandi stofum sem nýtast sem stofa og borðstofa, tveimur stórum svefnherbergjum, baðherbergi og geymslu. Frá íbúðinni eru suðursvalir með stiga niður í garð sem veita eigninni aukið notagildi og notalegt útisvæði.
Eignin er staðsett í gamla Vesturbænum þar sem stutt er í þjónustu, skóla, verslanir, kaffihús og útivistarsvæði. Slík staðsetning hefur notið mikilla vinsælda meðal kaupenda undanfarin ár.
Ásett verð eignarinnar er 97,9 milljónir króna.