Foreldrar eru að mörgu leyti sofandi þegar kemur að aðgengi barnaníðinga að börnum þeirra í gegnum snjallsíma, í raun sé búið að hleypa barnaníðingum inn í barnaherbergið, þetta segir Kristján Ingi Kristjánsson lögreglumaður í kynferðisbrotadeild. „Það er, tel ég, hættulegt að láta börn fá snjallsíma í hendurnar,“ segir hann í viðtali í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun, það á einnig við um iPada, spjaldtölvur og aðrar tölvur.
Kristján Ingi lögreglumaður með mikilvæg skilaboð til foreldra: „Þetta getur valdið gríðarlega miklu andlegu niðurrifi hjá börnum“