Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ - MBL.IS

Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ - MBL.IS

Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ - MBL.IS

Móðir 17 ára drengs, sem síðustu mánuði hefur beðið eftir að komast í meðferð vegna alvarlegs fíknivanda, mætti hálfgerðum skætingi frá mennta- og barnamálaráðherra þegar hún reyndi að benda að að það væri í raun bið eftir meðferðarúrræðum fyrir börn, þrátt fyrir fullyrðingar um annað af hálfu ráðherra.

Segir hún son sinn ítrekað hafa verið fluttan á bráðamóttöku vegna ofneyslu fíkniefna á meðan hann beið eftir meðferð, sem hann loks komst í fyrr í vikunni.

„Hann hefði örugglega getað látið lífið á meðan hann beið, það er bara þannig,“ segir móðir drengsins í samtali við mbl.is, en hún vill ekki koma fram undir nafni til að vernda son sinn. Hún er mjög ósátt við viðbrögð Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, sem svaraði gagnrýni sem kom fram í athugasemdum við Facebook-færslur, bæði á síðu Flokks fólksins og fréttamiðilsins Vísis. 

„Leikur að orðum, hvaða orðum?“

Móðirin skrifaði athugasemd við færslu á Facebook-síðu Flokks fólksins þar sem greint var frá því að engin bið væri eftir úrræðum fyrir börn með vímuefnavanda. Í sömu færslu var einnig greint frá því að meðferðarheimilið Lækjarbakki hefði formlega verið opnað á ný.

Færslunni fylgdi mynd af þeim Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, Ólöfu Ástu Farestveit, forstjóra Barna- og fjölskyldustofu, og Salvöru Nordal, umboðsmanni barna. Voru þær allar skælbrosandi.

Í athugasemdinni spurði móðirin meðal annars hvað flokkurinn kallaði enga bið fyrir börn og hvort öll börn væru gripin strax og þeim komið í viðeigandi úrræði. Hún sagðist telja að ekki væri farið með rétt mál og benti á að það væri alltaf einhver bið, sem hún þekkir af eigin raun.

Inga virðist hafa fundið sig knúna til að bregðast við og krafði móðurina svara á móti.

„Hvað er það sem við förum ekki rétt með? Vinsamlega komdu með það hér. Leikur að orðum, hvaða orðum? Er einhver vafi á því að búið sé að opna sérstakt meðferðarúrræði fyrir ungmenni sem lengi hefur verið beðið eftir ? Er einhver vafi á því að það séu engin börn á bið í meðferðarúrræðum á vegum ríkisins? Er einhver vafi á því að þarna séu 5 laus pláss? Vinsamlega rökstyddu mál þitt,“ skrifaði Inga við færsluna.

Þau fimm lausu pláss sem hún vísar til eru væntanlega pláss í langtímameðferð drengja á meðferðarheimilinu Lækjarbakka. Áður en drengir eru sendir þangað fara þeir í gegnum greiningu og meðferð á meðferðarheimilinu á Vogi sem nú heitir Esja.

Vissi ekki við hvern hún talaði 

Móðirin upplifir hroka af hálfu ráðherra og finnst skrýtið að Inga leyfi sér að tala með þessum hætti.

„Það er bara ofboðslega sorglegt að ráðherra mæti og komi með svona yfirlýsingar og það er bara „actually“ fólk á biðlista og það eru börn í alvarlegu ástandi að bíða,“ segir móðirin, en hún hefur líka reynt að fá fund með Ingu ásamt fleiri foreldrum barna sem glíma við fíknivanda.

„Hún talar svona við viðkvæma einstaklinga sem eru að standa í stappi við kerfið. Hún vogar sér að tala svona, án þess vita við hvern hún er að tala. Hún er bara með hroka,“ segir hún jafnframt.

„Það er galið að ráðherra skuli leyfa sér að tala svona við fólk.“

Hér svarar Inga konunni á Facebook-síðu flokks fólksins.
Hér svarar Inga konunni á Facebook-síðu flokks fólksins.

Inga tók líka slaginn og fór mikinn í athugasemdakerfinu undir deilingu af frétt Vísis á Facebook, þar sem sagt var frá því að engin bið væri nú eftir úrræðum, eins og greint var frá í síðustu viku. Þar sagði Inga meðal annars það „BULL“ þegar henni var tjáð að það væri bið eftir grunnmeðferð fyrir börn með fíknivanda.

„Það er fjandans sama hvað maður gerir, öskrandi neikvæðnin hljómar allt í kring. Það væri óneitanlega tilbreyting ef jákvæðnin fengi aðeins að brosa í gegnum sortann,“ sagði Inga einnig í annarri athugasemd.

Innt viðbragða í síðustu viku sagðist Inga hafa þurft að verja sjálfa sig þar sem hún hefði verið sökuð um ósannsögli en hún stæði við hvert einasta orð. Þá sæi hún ekkert athugavert við að ráðherra tjáði sig með þessum hætti.

Á bráðamóttöku daginn fyrir meðferð 

Eins og áður sagði er drengurinn nú kominn í meðferð og greiningu en hann fékk inni á meðferðarheimilinu Esju, sem staðsett er á Vogi og bar áður nafnið Blönduhlíð. Daginn áður en hann komst í meðferð lenti hann á bráðamóttöku í enn eitt skipti vegna ofneyslu lyfja.

Þá var hann tvisvar á fjórum dögum í apríl fluttur á bráðamóttöku en útskrifaður og sendur aftur heim um leið og hann vaknaði.

„Hann hélt bara áfram að bíða. Það tók ekkert við nema biðlisti og engin svör um hvenær hann kæmist að,“ segir móðirin.

„Við fórum í gær inn á meðferðarheimilið en þá var hann í mjög annarlegu ástandi. Það komu tveir starfsmenn af Stuðlum og hann þurfti að sofa úr sér á neyðarvistun Stuðla. Þegar hann kom þangað var hringt á sjúkrabíl og hann fluttur á bráðamóttöku þar sem þurfti að taka hjartalínurit og blóðþrýsting af því hann var í það alvarlegu ástandi.“

Þegar drengurinn vaknaði var hann sóttur af starfsmönnum Esju og farið með hann á meðferðarheimilið þar sem hann mun að óbreyttu fara í gegnum allt að tólf vikna grunnmeðferð.

Í kjölfarið verður svo tekin ákvörðun um framhaldið, hvort þörf er á framhaldsmeðferð en þá er um að ræða langtímameðferð á meðferðarheimilinu Lækjarbakka í Gunnarsholti.

Á sakaskrá 15 ára

Móðirin segir son sinn alltaf hafa verið mikinn „gaur“ og hann hafi passað illa inn í skólakerfið.

„Hann fékk greiningar frekar seint. Hann var alltaf álitinn óþekkur krakki og illa upp alinn og fékk mikið mótlæti frá fullorðnu fólki; kennurum, fótboltaþjálfurum og öðrum. Sjálfsmynd hans hefur svolítið litast af því.“

Hún segir hann snemma hafa farið að lenda í útistöðum og gera eitthvað af sér sem hann mátti ekki.

„Honum var oft kennt um hlutina og af því hann var álitinn svo óþekkur þá fór hann að leika það hlutverk.“

Drengurinn var orðinn 12 ára þegar skólinn fór að hafa orð á því að kannski þyrfti að óska eftir því að hann færi í greiningarferli. Eitthvað sem móðirin hafði ítrekað talað um frá því hann var í öðrum bekk. Var hann í kjölfarið greindur með ADHD, hvatvísi og mótþrjóskuröskun.

Hann var aðeins þrettán ára þegar hann var farinn að lenda í alls konar veseni, eins og hún orðar það. Þá var hann byrjaður að veipa. 15 ára var hann kominn á sakaskrá fyrir að hafa hrækt á lögreglumann, en dómurinn í málinu féll á þessu ári, um tveimur árum eftir atvikið.

Dróst hratt inn í harðari neyslu 

Móðirin segir grunnskólagönguna almennt hafa gengið frekar illa, en í lok tíunda bekkjar hafi hann þó verið kominn á betri stað.

Síðustu mánuði hafi hins vegar farið að halla undan fæti og drengurinn sogast hratt inn í heim harðari fíkniefna.

„Hann byrjaði að reykja gras, svo var hann kominn í róandi lyf og að reykja kristalmeth. Hann lenti í tvígang á bráðamóttöku á fjórum dögum og var í mjög annarlegu ástandi. Og það er ekkert sem grípur.“

Hún segir að í fyrra skiptið hafi læknar á bráðamóttökunni á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja reynt að koma drengnum að inni á barnaspítala Hringsins eða á fíknigeðdeild. Einnig hafi verið haft samband við Stuðla, en enginn hafi viljað taka við honum.

„Það var sagt nei alls staðar,“ segir móðirin.

„Þannig að hann þurfti að sofa úr sér á bráðamóttökunni. Svo þegar hann vaknaði daginn eftir vorum við send heim og hann hélt bara sínu striki.“

Var tilbúinn í meðferð 

Segir hún vandann hafa versnað mikið og hratt eftir það, en í fyrstu var drengurinn mjög tilbúinn sjálfur að fara í meðferð og beið eftir því að komast að.

„Það er svo sorglegt að grípa ekki barnið, að það sé ekkert úrræði sem grípur þau þegar þau eru svona tilbúin.“ Þegar loks kom að honum í meðferð hafði hann skipt um skoðun og var ekki á þeim buxunum að hætta neyslunni.

Móðirin segir þó jákvætt að hann hafi látið til leiðast og sé nú kominn í meðferð. Hann verður 18 ára í október svo tíminn er knappur áður en fullorðinsárin taka við og flækjustigið eykst í baráttunni við kerfið.

„Vonandi mun þetta ganga upp, þetta er alveg hrikalegt að standa í.“



Upprunaleg slóð:
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/05/24/krefur_modur_svara_vinsamlega_rokstyddu_mal_thitt/

📰 Aðrar fréttir

Rejecting closer EU ties would be dereliction of duty, PM to say
📅 12.10.2026 👁️ 0
Rejecting closer EU ties would be dereliction of duty, PM to say
Addressing the Commons, Burnham is expected to say that a new deal with the EU could help tackle illegal immigration and boost economic growth.
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth
📅 12.10.2026 👁️ 0
Deloitte helped in falsifying documents to evade tax on Abramovich’s wealth
Backdated paperwork also made the Russian oligarch’s yachts and mansions disappear from accounts, BBC finds.
Handtóku 61 vegna gruns um skipulagningu skemmdarverka
📅 12.10.2026 👁️ 1
Handtóku 61 vegna gruns um skipulagningu skemmdarverka
Yfirvöld í Alsír greindu frá því í gær að 61 Marokkómaður hefði verið handtekinn fyrr í þessum mánuði vegna gruns um að vera að leggja á ráðin um skem...
Önnur árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad
📅 12.10.2026 👁️ 1
Önnur árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad
Einn var drepinn og ellefu særðust í árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad, höfuðborg Sádi Arabíu, í gærkvöld. Hútar hafa lýst yfir ábyrgð á mannskæðri árá...
Árásir á orkuinnviði í Úkraínu þrátt fyrir meint samkomulag um vopnahlé
📅 12.10.2026 👁️ 2
Árásir á orkuinnviði í Úkraínu þrátt fyrir meint samkomulag um vopnahlé
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir að Rússar hafi gert árásir á orkuinnviði í Kyiv og Kharkiv í gær eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti grein...
Fimm saknað eftir skyndiflóð í Nepal
📅 12.10.2026 👁️ 3
Fimm saknað eftir skyndiflóð í Nepal
Fimm er saknað eftir skyndiflóð í Gorkha-héraði í Nepal í dag um hundrað kílómetra frá höfuðborginni Katmandu.Flóðið hreif með sér 45 hús þegar skriða...
Endangered orangutans released back into the wild after Borneo fires
📅 11.10.2026 👁️ 0
Endangered orangutans released back into the wild after Borneo fires
The critically endangered apes were rescued from intense wildfires that destroyed their habitat in August and September.
Karlmaður handtekinn vegna rannsóknar á mögulegum banatilræðum
📅 11.10.2026 👁️ 4
Karlmaður handtekinn vegna rannsóknar á mögulegum banatilræðum
Donald Tusk forsætisráðherra Póllands greindi frá handtökunni í færslu á X og hrósaði lögreglunni fyrir skjót og góð viðbrögð.Greint var frá því í dag...
Vonast til að leysa ráð­gátuna um hvarf Ameliu Earhart - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Vonast til að leysa ráð­gátuna um hvarf Ameliu Earhart - Vísir
Hópurinn heldur í leiðangurinn á vegum Purdue-háskóla í Indiana í Bandaríkjunum og ALI (Archaeological Legacy Institute). Gert er ráð fyrir að áhöfnin...
Landsvirkjunarhúsið fær nýtt hlutverk
📅 11.10.2026 👁️ 4
Landsvirkjunarhúsið fær nýtt hlutverk
Landsvirkjun þurfti að leggja af starfsemi í höfuðstöðvum sínum við Háaleitisbraut 68 eftir að myglu varð þar vart 2022.Líklega er ekkert stórhýsi á h...
AI is less regulated than milk, Microsoft president says
📅 11.10.2026 👁️ 0
AI is less regulated than milk, Microsoft president says
Brad Smith calls for global rules on AI, and says the UK is in the "best position" to lead the charge.
Iran war threatens Healey's Budget plans, think tank warns
📅 11.10.2026 👁️ 4
Iran war threatens Healey's Budget plans, think tank warns
The impact of the Iran war poses significant risks for the government’s spending plans, the Institute for Fiscal Studies says.
Tígris­dýrið verður ekki af­lífað - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Tígris­dýrið verður ekki af­lífað - Vísir
Lögreglunni í Suður-Jórvíkurskíri á Englandi barst tilkynning um að maður hefði farið inn á afgirt svæði tígrisdýrs í dýragarðinum Yorkshire Wildlife ...
Eyðileggingin í Kyiv nístir hjartað
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eyðileggingin í Kyiv nístir hjartað
Úkraínumenn búa sig undir veturinn sem óttast er að verði erfiður. Tanya Korolenko, sem býr í höfuðborginni Kyiv, segir stöðugar drónaárásir reyna mei...
Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir
Þetta segir Andrea Örk Bernhöft, nítján ára, sem hefur glímt við áráttu- og þráhyggjuröskun, eða OCD, frá barnæsku. Fyrstu einkennin komu fram þegar h...
Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ - Vísir
Viktor Freyr ljósmyndari Vísis var á Austurvelli fyrr í dag og fangaði þessar myndir. Rúmlega 13 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun um verndun Se...
Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk
📅 11.10.2026 👁️ 4
Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk
S-listi Samfylkingar og óháðra og B-listi Framsóknar og óháðra hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Samkomulag...
Reform would suspend asylum system for parliamentary term if in government
📅 11.10.2026 👁️ 4
Reform would suspend asylum system for parliamentary term if in government
All asylum applications would be rejected and existing ones voided, with all claimants marked for deportation.
Hvað á að gera við gömlu kjörkassana?
📅 11.10.2026 👁️ 4
Hvað á að gera við gömlu kjörkassana?
Gömlu viðarkjörkassarnir, sem hefur verið skipt út fyrir plast, fá framhaldslíf víða um land. Akureyringur, sem tryggði sér tvo kassa í vikunni, segir...
Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ - Vísir
Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Þar segir að samstarfið hafi verið undirritað nú í kvöld og byggi á sameiginlegum áherslum flokkanna um ábyrg...
Abbas frestar kosningum enn á ný – hefur setið við völd í 21 ár án endurkjörs
📅 11.10.2026 👁️ 4
Abbas frestar kosningum enn á ný – hefur setið við völd í 21 ár án endurkjörs
Mahmoud Abbas, 90 ára forseti Palestínsku heimastjórnarinnar, hefur enn á ný frestað þingkosningum á palestínsku svæðunum. Abbas var kjörinn forseti á...
Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfir­lýsingu Trumps - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfir­lýsingu Trumps - Vísir
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti svokallað orkuvopnahlé milli Rússlands og Úkraínu á færslu sinni Truth Social fyrr í dag. Vólódímír Selenskí ...
Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
Við erum að tala um tengdamömmusögurnar! Það óþægilega er samt að í þetta sinn snúast sögurnar ekki um tengdamömmuna þína eða öll óumbeðnu ráðin sem h...
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
📅 11.10.2026 👁️ 4
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
Mótmæli voru haldin á Seyðisfirði og Austurvelli í Reykjavík í dag gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Fyrirtækið Kaldvík hefur fengið leyfi fyrir tíu þús...
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
Frá september 2024 hafa lögreglumenn borið rafbyssur við skyldustörf sem valdbeitingartæki. Á þeim tíma hefur slysum þeirra fækkað umtalsvert. Til vin...
„Þarna er hann í innanlandspólitískum leik á kostnað Úkraínu“
📅 11.10.2026 👁️ 4
„Þarna er hann í innanlandspólitískum leik á kostnað Úkraínu“
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir að það sé „köld tuska“ í andlitið á Úkraínumönnum og stuðningsþjóðum þeirra að Donald Trump Bandaríkja...
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa
📅 11.10.2026 👁️ 4
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti fy...
„Við erum ekkert að biðja um ein­hverja sér­með­ferð“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
„Við erum ekkert að biðja um ein­hverja sér­með­ferð“ - Vísir
Unnur segist taka því hlutverki mjög alvarlega að sveitarfélögin í landinu beri ábyrgð á menntun grunnskólabarna. „En til þess að geta lagað það sem s...
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Dómsmálaráðuneyti Ban...
Orangutans released back into Borneo forest after devastating fires
📅 11.10.2026 👁️ 4
Orangutans released back into Borneo forest after devastating fires
Rescuers moved the apes after their habitats were threatened by intense wildfires over the summer.
Er eðli­legt að langa í kyn­líf eftir makamissi? - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Er eðli­legt að langa í kyn­líf eftir makamissi? - Vísir
Sæll og takk fyrir einlæga spurningu. Stutta svarið er já. Það sem þú lýsir er eðlilegt og það er ekkert mótsagnakennt við að sakna konunnar þinnar sá...
Björn Jón skrifar: Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
📅 11.10.2026 👁️ 4
Björn Jón skrifar: Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
Mynd Gífurlegar óeirðir í Frakklandi undanfarnar vikur hafa vakið heimsathygli og
Tígrisdýr sem varð manni að bana í dýragarði verður ekki aflífað
📅 11.10.2026 👁️ 4
Tígrisdýr sem varð manni að bana í dýragarði verður ekki aflífað
Dýragarðurinn í Jórvíkurskíri á Englandi hefur tilkynnt að tígrisdýrið sem varð manni að bana í gær verði ekki aflífað.Tígrisdýrið réðst á manninn þeg...
Singapore Grand Prix: Lewis Hamilton apologises to Ferrari as Kimi Antonelli moves to brink of title
📅 11.10.2026 👁️ 4
Singapore Grand Prix: Lewis Hamilton apologises to Ferrari as Kimi Antonelli moves to brink of title
Lewis Hamilton's incorrect strategy call during the Singapore Grand Prix means Kimi Antonelli can win the world title at the next race in Austin.
Eyjamenn og Austfirðingar vilja ekki vera í sama lögregluembætti
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eyjamenn og Austfirðingar vilja ekki vera í sama lögregluembætti
Austfirðingar og Eyjamenn vilja ekki vera í sama lögregluembætti og hafa óskað eftir fundi með dómsmálaráðherra. Hún hefur boðað fækkun lögregluembætt...
Brotist inn í tvö fyrir­tæki - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Brotist inn í tvö fyrir­tæki - Vísir
Er þetta meðal þeirra 69 mála skráðu í kerfi lögreglu í dag. Innbrotin áttu sér stað í umdæmi lögreglustöðvar eitt sem sinnir útköllum í Miðbæ, Vestur...
Man City: Prime Minister Andy Burnham to release details of his meetings with Man City owners
📅 11.10.2026 👁️ 4
Man City: Prime Minister Andy Burnham to release details of his meetings with Man City owners
Andy Burnham has faced criticism for comments he made in the wake of Manchester City being found guilty of all charges related to breaches of the Prem...
PM says it is 'clear' Russia interfered with Brexit referendum
📅 11.10.2026 👁️ 4
PM says it is 'clear' Russia interfered with Brexit referendum
He says voters were not "sufficiently" informed about how foreign actors sought to disrupt UK democracy.
Ósjálfbjarga vegna ölvunar
📅 11.10.2026 👁️ 4
Ósjálfbjarga vegna ölvunar
Einn maður var handtekinn fyrir ofbeldi í heimahúsi í dag, í umdæmi lögreglustöðvar 3, sem er Breiðholt og Kópavogur. Þetta kemur fram í dagbók lögreg...
Segir leigubremsu lækka verðbólgu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Segir leigubremsu lækka verðbólgu
Frumvarp ríkisstjórnarinnar um leigubremsu hefur vakið miklar deilur og seðlabankastjóri sagði áformin vera heimskuleg. Stefán Ólafsson, hagfræðiprófe...
Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu
Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu Vís­inda­menn rann­saka rúst­ir borg­ar sem hef­ur leg­ið und­ir vatni í Kirg­ist­an u...
Fær auka­dag til stjórnar­myndunar - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Fær auka­dag til stjórnar­myndunar - Vísir
Þetta tilkynnti þingforsetinn Andreas Norlén, fulltrúi Moderaterna, eftir hádegið en hann mun hitta Andersson á þriðjudagsmorgun þar sem hún getur ann...
Fleiri risaskjaldbökur á Seychelles-eyjum en íbúar
📅 11.10.2026 👁️ 4
Fleiri risaskjaldbökur á Seychelles-eyjum en íbúar
Frjálsar risaskjaldbökur eru mun fleiri en áður hefur verið talið.Ný talning hefur leitt í ljós að um 180 þúsund Aldabra-risaskjaldbökur eru á Aldabra...
Poland detains man suspected of planning assassination of PM Donald Tusk
📅 11.10.2026 👁️ 4
Poland detains man suspected of planning assassination of PM Donald Tusk
Police received credible information about possible attacks against Donald Tusk and his defence minister.
Akra­nes og Akur­eyri dæmi þar sem hættan sé raun­veru­leg - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Akra­nes og Akur­eyri dæmi þar sem hættan sé raun­veru­leg - Vísir
Samkvæmt nýrri samgönguáætlun sem á að gilda til 2040 er gert ráð fyrir að ríkisframlög til sjóvarna lækki úr 181 milljón niður í 144 milljónir til ár...
Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp - Vísir
Eldurinn kom upp um tólfleytið í hádeginu gær en hann kviknaði í áltökubíl í kerskála álversins sem notaður er til að flytja fljótandi málm. Slökkvili...
New data says there is a 77% chance of a volcanic eruption in the Canary Islands within 50 years
📅 11.10.2026 👁️ 4
New data says there is a 77% chance of a volcanic eruption in the Canary Islands within 50 years
The Spanish Government has officially recognised a 77.69% probability of at least one volcanic eruption occurring somewhere in the Canary Islands with...
Saudi Arabia's Riyadh airport hit by second Houthi strike in two days
📅 11.10.2026 👁️ 4
Saudi Arabia's Riyadh airport hit by second Houthi strike in two days
The Yemeni group says it carried out attacks that killed 13 people over the weekend and targeted two airports and oil facilities.
Trump lýsir yfir hléi á árásum á orkuinnviði
📅 11.10.2026 👁️ 4
Trump lýsir yfir hléi á árásum á orkuinnviði
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Rússland og Úkraína hafi gert með sér samkomulag um að láta af árásum á orkuinnviði hvort annars.Volodymyr Zel...
What British expats should check before using UK online services abroad
📅 11.10.2026 👁️ 4
What British expats should check before using UK online services abroad
Moving from the UK to the Canary Islands does not necessarily mean giving up every online account or subscription. The truth is that many people conti...