Krefjumst þingrofs og nýrra kosninga!

Kristín Þormar skrifar:
Viðbrögð umheimsins við öruggri og afgerandi höfnun þjóðarinnar í kosningunum varðandi ESB eru gríðarlega sterk og jákvæð, og eiga án nokkurs vafa eftir að hafa meiri áhrif á heimsvísu en okkur getur órað fyrir.
Það fer ekkert á milli mála núna, eins og sjá má af ummælum ótal Íslendinga eftir kosningarnar, að þeir vilja koma þessari ríkisstjórn frá völdum, þjóðin var ekki bara að hafna ESB með afgerandi hætti, heldur líka ríkisstjórninni.
Þótt niðurstaða laugardagsins væri afgerandi er björninn samt enn ekki unninn. Ríkisstjórnin hefði að réttu lagi átt að segja af sér þegar úrslitin voru kunn, en sú er aldeilis ekki raunin. Þess í stað ætlar Þorgerður Katrín að reyna að keyra aftur í gegn Bókun 35, sem er ekkert annað en bakdyraleið inn í ESB.
Ljóst er að ásetningurinn er afdráttarlaus og stjórnað af ESB að stóru leyti. Það má sjá á því að hún ætlar ekki að afturkalla umsókn þá að ESB, sem líklega einungis hún og hennar handbendi telja (að öllum líkindum ranglega) að sé enn í gildi síðan í stjórnartíð Steingríms og Jóhönnu. Sú er þar með sautján ára gömul og þannig stjórnskipunarréttarlega fyrnd eða gildisfallin af öðrum ástæðum.
Þetta ástand er vitaskuld með öllu andlýðræðislegt og afdráttarlaust ólögmætt, svo ekki sé fastar að orði kveðið.
Ríkisstjórn Íslands er rúin trausti, svo það er brýnt að koma henni frá völdum. Við Íslendingar, vinnuveitendur Þorgerðar Katrínar og raunar stjórnarinnar allrar, verðum að krefjast þingrofs og nýrra kosninga. Helsta lýðræðislega og jafnframt lagalega rétta leiðin í þvi sambandi er að krefjast þess að forseti Íslands beiti valdheimildum sínum og viðbragðsmöguleikum samkvæmt stjórnarskrá okkar í þeim efnum, sbr. einkum 24. gr. stjórnarskrárinnar í því áhorfi.
Logi Kjartansson lögfræðingur hefur nú þegar sent inn mjög svo rökfasta og réttmiðaða kosningakæru til úrskurðarnefndar kosningamála, en vitanlega hefur sú stofnun ekki þingrofsvaldið, það er einvörðungu á Bessastöðum.
Hann lagði ómælda vinnu í tæpa þrjá mánuði að stórum hluta til á eigin kostnað við ritun kosningakærunnar, því verkefnið tók margfalt meiri tíma en í upphafi var reiknað með.
Vakti kæran mikla athygli, og hefur vafalaust opnað augu margra fyrir ólögmæti þessarar vegferðar og valdþurrðar Þorgerðar Katrínar í þessu efni, auk fleiri ólögmætisannmarka og ágalla.
Til þess að Logi fullvinni það erindi um þingrof og nýjar kosningar, er þess beiðst að þeir sem vilja leggi þessu bráðnauðsynlega þjóðþrifaverki lið leggi inn á reikning 0515-26-2556, kt. 060875-4059. Öll framlög eru vel þegin, stór sem smá.