Viðskiptaráð hefur gefið út kosningapróf þar sem kjósendur geta séð hvaða framboði í Reykjavík þeir standa næst þegar kemur að lykilmálum og verkefnum borgarinnar og staðsett sig á kosningaáttavita Viðskiptaráðs.
Prófið samanstendur af 30 spurningum sem ráðið lagði fyrir öll framboð sem bjóða fram í Reykjavíkurborg í komandi sveitarstjórnarkosningum. Spurningarnar varpa ljósi á afstöðu til efnahagslegs frelsis og draga jafnframt fram hversu skýr stefna framboðanna er.
Spurningarnar eru settar fram sem fullyrðingar og gefst þátttakendum kostur á fimm svarmöguleikum; mjög fylgjandi, frekar fylgjandi, hlutlaus, frekar andvíg og mjög andvíg.
Prófið gefur að sögn Viðskiptaráðs kjósendum kost á að fá skýra mynd af stefnu framboðanna í efnahagsmálum og jafnframt að máta sig við stefnu flokkanna.