Í tilkynningu þess efnis frá Landsbjörg segir að áhöfn björgunarskipsins Jóhannesar Briem í Reykjavík hafi verið boðuð út og haldið úr höfn rétt upp úr klukkan 11. Skömmu fyrir klukkan 12 hafi Jóhannes verið kominn að fiskibátnum, sem verður svo dreginn til hafnar í Hafnarfirði.
Engin yfirvofandi hætta sé á ferðum fyrir bát eða skipverja fiskibátsins og reikna megi með að skipin verði komin til hafnar milli 13 og 14.