Knattspyrnumaðurinn ungi Sölvi Stefánsson hefur gert þriggja og hálfs árs samning við uppeldisfélagið sitt Víking.
Hann kemur til Víkings frá AGF í Danmörku en hann fór þangað ungur að árum árið 2023.
Sölvi spilaði einn leik með Víkingi áður en hann hélt til Danmerkur en leikmaðurinn er að jafna sig á krossbandsslitum sem hann varð fyrir á síðasta ári.