Ming Ting Mancel, sem var dæmd í tólf ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær vegna Edition-málsins svokallaða, hefur verið hneppt í gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna.
Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson. Hann segir Mancel hafa verið færða í varðhald um sjöleytið í gærkvöld.
Mancel hyggst áfrýja dómnum til Landsréttar og verjandi hennar, Ómar Örn Bjarnþórsson, staðfestir að hún hyggist einnig kæra gæsluvarðhaldsúrskurðinn.
Mancel hlaut dóminn fyrir að bana dóttur sinni Katherine Mancel í samverknaði við eiginmann sinn, Emeric Mancel, þann 14. júní á síðasta ári og brot í nánu sambandi.
Ekki sannað að hjónin hafi gripið um handlegg dótturinnar
Dómurinn taldi að allar forsendur ákærunnar væru sannaðar að undanskilinni einni að sögn Karls Inga og Ómars. Það hafi þó ekki talist sannað að Mancel og eiginmaður hennar hafi gripið í upphandlegg dóttur sinnar.
Það sé þó talið sannað að þau hafi brugðið snöru um háls hennar og þrengt að öndunarvegi hennar í drjúga stund. Þá er einnig talið sannað að þau hafi stungið dótturina tvisvar með hnífi í brjóstkassann, en önnur stungan gekk inn að hjarta hennar. Karl Ingi segir Mancel aftur á móti eina vita hver hafi gert hvað.
Ómar Örn bendir á að fram komi í dómnum að líklegt sé að maðurinn hafi verið aðalgerandinn í málinu. Dómurinn hefur ekki verið birtur ennþá en starfsmenn dómstólsins vinna nú að því að nafnhreinsa hann.
Hjónin bönuðu dótturinni á hótelherbergi fjölskyldunnar á Edition-hótelinu, en eiginmaðurinn lést einnig sama kvöld. Mancel var ekki ákærð fyrir aðild að andláti hans og hefur ávallt haldið því fram að dóttirin hafi viljað deyja með foreldrum sínum. Það hafi verið tilgangur ferðarinnar til Íslands.
Ítarlega var fjallað um fjölskylduharmleikinn á Edition-hótelinu í þættinum Sögur úr raunveruleikanum á Rás 1. Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér að neðan: