Sádi-Arabía hefur skrúfað fyrir mikilvæga olíuleiðslu eftir drónaárás frá Írak.
Engin þjóð flytur út meiri olíu en Sádi-Arabía og um 4-5% af olíu heimsins fer alla jafna um austur-vestur-olíuleiðsluna. Hún er um 1.200 kílómetra löng og hefur hjálpað Sádi-Aröbum að komast hjá því að flytja olíu um Hormússund.
Flutningar um sundið hafa verið erfiðir síðustu mánuði sökum árása Bandaríkjanna á Íran.
Írakar hafa viðurkennt að drónaárás á leiðsluna hafi tekið á loft í landinu og hafið rannsókn á henni. Dróninn hafi komið frá svæði undir þeirra stjórn nærri landamærunum við Íran. Yfirmaður í Íraksher hefur verið rekinn í tengslum við málið.
Stefna ekki á hefndaraðgerðir
Sádi-Arabar hafa áður sakað Íraka um að styðja við bakið á vopnuðum hópum sem hafa beint spjótum sínum að olíuinnviðum í landinu.
Í yfirlýsingu frá utanríkisráðuneyti Sádi-Arabíu segir að árásarinnar verði ekki hefnt, allavega sem stendur. Ríkið ætli að hjálpa yfirvöldum í Írak að koma í veg fyrir frekari árásir frá landinu á nágrannaríki þess.
„Konungsríkið Sádi-Arabía áskilur sér þann rétt að gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja sjálfræði sitt og öryggi, verja innviði og fólkið í landinu,“ segir í yfirlýsingunni.
Þrýstingurinn eykst
Þrýstingur á olíuflutninga á Mið-Austurlöndum hefur aukist samhliða áframhaldandi átökum Bandaríkjanna og Írans og sókn Húta í Jemen.
Hútar, sem eru hliðhollir Írönum, náðu tökum á ströndinni við Rauðahaf í skyndisókn í gær. Jemenar, sem njóta stuðnings Sádi-Araba, hæfðu í kjölfarið Húta í og við strandborgina Mokha í gær en Hútar náðu stjórn á borginni á fimmtudag.