Bandaríska staðgöngumóðirin McKenna West hefur staðið í hörðum deilum við Omar Ahmed og Nausheen Gilkar sem hún gekk með barn fyrir.
Ahmed og Gilkar eru líffræðilegir foreldrar barnsins en höfðu ráðið West til að ganga með það í Kaliforníu. Þegar í ljós kom að barnið væri með alvarlegan hjartagalla í tuttugu vikna skoðun báðu þau West um að rjúfa þungunina.
West neitaði því og flúði til Texas þar sem þungunarrof er nær alfarið ólöglegt.
Rumi eða Gabriel?
Hún fæddi dreng í Texas 12. ágúst með vanþroska vinstra hjarta, sem veldur því að hjartað getur ekki dælt nægu blóði til líkamans. Foreldrar drengsins hafa nefnt hann Rumi en staðgöngumóðirin kallar hann Gabriel.
Dómstóll í Kaliforníu hafa veitt Ahmed og Gilkar forræði yfir barninu og dómstóll í Texas gaf út nálgunarbann á hendur staðgöngumóðurinni gagnvart barninu. Foreldrarnir lýstu því fyrir dómstólum að barnið væri ljósið í lífi þeirra.
Óttast að foreldrarnir setji barnið í lífslokameðferð
West hefur áfrýjað forræðismálinu til hæstaréttar og kveðst óttast um líf drengsins í höndum foreldranna, í ljósi þess að þau hafi viljað rjúfa þungunina. Hún sé hrædd um að hann fái ekki þá læknisaðstoð sem hann þurfi.
Án íhlutunar hæstaréttar hafi hún ekki upplýsingar um heilsu og líf barnsins.
Hún hafi neitað að rjúfa meðgönguna eftir að hún komst að því að til væru meðferðarúrræði við hjartagallanum. Lögfræðingar West tóku jafnframt fram í málsbeiðni sinni að West óttaðist að foreldrar barnsins myndu setja það í lífslokameðferð.
Hjartagallinn er ekki læknanlegur en börn sem fæðast með hann þurfa almennt að gangast undir aðgerðir á lífsleiðinni og þjást af fylgikvillum samkvæmt upplýsingum frá bandarískum heilbrigðisyfirvöldum.
Lögmaður foreldranna sagði barnið í lífshættu í síðasta mánuði og þjást af hugsanlegum fylgikvillum.