„Hefndarkjóll“ Díönu prinsessu verður boðinn upp í desember. Hann er metinn á hátt í 40 milljónir íslenskra króna. Hún klæddist kjólnum sama dag og fyrrverandi eiginmaður hennar, Karl Bretaprins, viðurkenndi í sjónvarpsviðtali að hafa átt í ástarsambandi meðan þau voru gift.
Bresku dagblöðin teppalögð með myndum af Díönu í kjólnum
Augnablikið fellur mörgum seint úr minni. 29. júní 1994 steig Díana prinsessa út úr bíl við Serpentine-galleríið í Lundúnum. Hún klæddist stuttum, svörtum, aðsniðnum silkikjól frá hönnuðinum Christina Stambolian. Kjóllinn var fleginn, hún var með berar axlir og stórt demantshálsmen.
Tímasetningin var engin tilviljun. Fyrr sama kvöldið hafði viðtal við Karl, þá Bretaprins, verið sýnt í sjónvarpinu. Þar viðurkenndi hann að hafa átt í ástarsambandi við aðra konu meðan hann var giftur Díönu. Þau höfðu verið skilin að borði og sæng í rúmt ár.
Fréttamaðurinn spurði hvort Karl hafi reynt að vera trúr Díönu og heiðarlegur í hjónabandi þeirra.
„Já, fullkomlega,“ svaraði Karl. Fréttamaðurinn hélt áfram.
„Og varst þú það?“
„Já,“ sagði Karl og bætti við eftir langa þögn: „þar til að sambandið brotnaði endanlega niður.“
Díana hafði fengið ábendingu um að viðtalið yrði sýnt þennan dag. Hún tók því til sinna ráða og daginn eftir voru forsíður blaðanna teppalagðar af ljósmyndum af Díönu, ekki fréttum úr viðtalinu við Karl.
Fyrrverandi stílisti hennar sagði síðar að hún hafi viljað líta út eins og milljón dollarar.
Breytti tískusögunni
Tískuspekúlantar segja kjólinn hafa breytt tískusögunni. Hugtakið hefndarkjóll - revenge dress - varð til eftir þetta. Hún hafi haft djúpan skilning á mátti tískunnar.
Díana klæddist kjólnum aldrei aftur og hún setti hann á uppboð í júní 1997 ásamt 79 öðrum kjólum úr einkasafninu sínu.
Ágóðinn rann til góðgerðarsamtaka sem studdu baráttuna gegn alæmi og krabbameini.
Núverandi eigendur kjóllinn keyptu hann á þessu uppboði og hann hefur verið í eigu þeirra allar götur síðan. Kjóllinn fer aftur á uppboð í desember hjá Sotheby's uppboðshúsinu. Hann er metinn á 150 til 300 þúsund bandaríkjadali, hátt í 40 milljónir króna.