Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar hyggst bjóða sig fram til varaformennsku. Frá þessu greinir hann í færslu á Facebook-reikningi sínum.
Á næstu vikum mun ég eiga samtöl við flokksfélaga hringinn í kringum landið, kynna hugmyndir mínar um hvernig við styrkjum flokkinn og hlusta eftir góðum hugmyndum úr grasrótinni.
Ég hlakka til samtalsins og til þess að við höldum áfram að sækja fram saman í þágu þjóðarinnar.
Kosið verður um nýjan formann á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í október. Í samtali við fréttastofu segir Guðmundur Ari sér ekki kunnugt um önnur framboð enn sem komið er.
Sitjandi varaformaður flokksins er nafni hans Guðmundur Árni Stefánsson. Hann var oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningunum í vor, en flokkurinn missti töluvert fylgi í sveitarfélaginu.
Guðmundur Árni tilkynnti í kjölfarið að hann hygðist ekki taka sæti í bæjarstjórn og myndi víkja sem varaformaður flokksins. Það mun hann gera á fundinum í október.