Litla kartöfluhátíðin í svonefndu Stúkuhúsi við Garðaholt 3 í Byggðasafninu Görðum á Akranesi verður sett formlega klukkan tvö í dag þar sem boðið verður upp á skemmtilegan fyrirlestur og kartöflukonfekt svo eitthvað sé nefnt. Þetta er fimmta árið sem hátíðin er haldin.
Vera Líndal Guðnadóttir er verkefnastjóri menningar- og safnamála hjá Akraneskaupsstað og veit allt um Litlu kartöfluhátíðina.
„Hugmyndin er sem sagt að tengja saman sögu, ræktun og matarmenningu og sögu Akraneskaupsstaðar í samengi við kartöfluna,” segir Vera og bætir við:
„Það er líka bara gaman fyrir Skagafólk að læra aðeins um söguna því að Akraneskaupsstaður var jú mjög merkilegur kartöfluræktarbær hérna á árum áður”.
Eruð þið enn að rækta kartöflur af fullum krafti?
„Já, en það er kannski meiri hobbýrækt held ég í görðunum hérna en svo erum við með matjurðagarða, sem kaupstaðurinn leigir út til íbúa.”
En dagskráin í dag, hvernig verður hún?
„Í ár ætlar Ingólfur Guðnason, garðyrkjufræðingur og frumkvöðull í lífrænni ræktun að koma og segja okkur aðeins frá því, sem hann þekkir og veit um ræktun kartöflunnar,” segir Vera.
Kókoskartöflukonfekt
Svo eruð þið með konfekt, kartöflukonfekt, hvað er það?
„Heyrðu, hún Tinna Royal listakona hér á Akranesi, hún hefur alltaf séð um að búa til ljúffenga mola ár hvert og hún er að búa til svona gamla uppskrift, sem að inniheldur gífurlegt magn af sykri, sem er gott með kaffibollanum og í ár ætlar hún að prófa nýja tegund. Hún hefur verið með þessa klassísku, sem er með myntubragði og hefur farið í saltkartöfluna og svo fáum við að smakka kókoskartöflukonfekt í ár,” segir Vera.
Vera segir alla hjartanlega velkomna á Litlu Kartöfluhátíðina.
„Ég hvet alla til að koma og heyra meira. Svo verðum við með skemmtilega sölubása á svæðinu, jarðefna Jói og Selir grænmeti ætla að koma og selja eitthvað gúmmilaði á svæðinu. Ég hvet bara alla að líta við á safnasvæðið okkar, það er alveg gífurlega fallegt,” segir Vera, spennt fyrir deginum.