Breska leyniþjónustan áætlar að 500.000 rússneskir hermenn hafi fallið í stríðsátökunum í Úkraínu. Yfirmaður breska hersins, Rich Knighton, greindi frá þessu í viðtali við Sky News í gær.
Mesta mannfallið hefur orðið eftir janúar 2023. Á sama tíma hafa Rússar einungis náð tveimur prósentum af landsvæði Úkraínu. Þá er talið að samanlagður fjöldi fallinna, særðra og þeirra sem saknað er sé 1,5 milljón rússneskra hermanna.
Í gær voru 1.660 dagar frá því að innrás Rússa hófst í Úkraínu, 24. febrúar 2022. Hersveitir Rússa hafa því barist lengur í Úkraínu en Rússar börðust í bæði fyrri og síðari heimsstyrjöld.
Knighton segir að stríðsreksturinn hafi leitt til hægari vaxtar í Rússlandi, samdráttar í neyslu og þrálátrar verðbólgu. Hann sagði að fórnarkostnaðurinn fyrir rússneskt efnahagslíf, velferð þjóðarinnar og framtíðarhorfur væru gríðarlegar.