Presturinn sem hataði kristin­fræði - Vísir

Presturinn sem hataði kristin­fræði - Vísir

Presturinn sem hataði kristin­fræði - Vísir

„Kjarni kristinnar siðfræði er í raun mjög einfaldur: að elska náungann og koma fram við annað fólk eins og maður vill að komið sé fram við mann sjálfan. Mér finnst mjög varasamt þegar trúartextar eru notaðir til að réttlæta fordóma eða búa til þessa skiptingu í „við“ og „þau.“

Heimili fyrir alla

Dagur hefur nýtt samfélagsmiðla, meðal annars TikTok, til að ræða trú á opinskáan hátt við fólk sem myndi ef til vill aldrei leita til kirkjunnar að fyrra bragði.

Fyrir Degi er þetta þó ekki svo róttækt stökk frá hefðbundinni prestsþjónustu og ætla mætti. Miðillinn er nýr, en aðferðin gömul.

„Postularnir stóðu bara úti á götuhornum og voru að prédika fagnaðarerindið þar. Þannig séð er ekkert nýtt að það sé prédikað. Við getum alveg kallað þetta prédikun. Þetta er bara nútímalegur prédikunarstíll.“

Upphafið að samfélagsmiðlanotkun Dags í prestsstarfinu má að verulegu leyti rekja til Covid. Þegar faraldurinn skall á og kirkjur tæmdust þurfti einfaldlega að finna nýjan vettvang. Hann fór að vinna meira með samfélagsmiðla og tók einnig þátt í hlaðvarpsgerð. Fólkið gat ekki komið í kirkjuna, svo kirkjan varð að finna aðrar leiðir til fólksins.

Nú hefur þessi miðlun þróast áfram. Í myndskeiðum sínum á TikTok og Instagram tekur Dagur að fyrir spurningar sem fólk kann að velta fyrir sér án þess að hafa sérstakan áhuga á guðfræði eða vera vant kirkjugöngu.

Eitt þeirra myndskeiða sem vakti athygli snerist um það hvort fólk þyrfti að vera trúað til að mæta í kirkju.

„Maður þarf ekkert að vera feiminn við að koma inn í kirkju þótt maður sé ekki trúaður. Það er ekki eins og maður brenni upp. Allir eru velkomnir. Við viljum að Fríkirkjan í Reykjavík geti verið heimili fyrir alla.“

Leið Dags inn í prestsstarfið var langt frá því að vera fyrirsjáanlegVísir/Anton Brink

Skeggjaði hvíti karlinn á himnum

Leið Dags inn í prestsstarfið var langt frá því að vera sjálfgefin. Hann hefur sjálfur sagt frá því að hafa þolað kristinfræði illa í grunnskóla. Raunar er orðið „illa“ varla nógu sterkt.

„Shit, hvað ég hataði kristinfræðina. Mér fannst hún svo leiðinleg og mér fannst þetta bara bull. Ég var mjög skeptískur og með frekar kassalaga, lógíska hugsun. Og svo er ég hér.“

Hann var á náttúrufræðibraut í framhaldsskóla og segir að það hafi því verið ákveðið „ströggl“ að fara í guðfræði þar sem nálgunin var gjörólík þeirri hugsun sem hann hafði vanist.

Síðar lauk hann embættisprófi í guðfræði og fór í prestsstarf. Hann hefur meðal annars starfað fyrir austan og í Skálholti og starfar nú sem prestur í Fríkirkjunni í Reykjavík. Á ferlinum hefur hann jafnframt haldið áfram að spyrja spurninga sem fara langt út fyrir það sem margir tengja við hefðbundið kirkjustarf.

Ein þeirra snýr að sjálfri hugmyndinni um Guð.

Dagur segir að opinber umræða um kristni festist oft í afar einfaldri mynd, þar sem Guð verður að eins konar skeggjuðum hvítum karli sem situr einhvers staðar á skýi. Þá guðsmynd segir hann bæði takmarkandi og sérkennilega.

Hann rifjar upp ráð frá leiðbeinanda sínum í guðfræðinni sem hefur setið í honum: að manneskja geti þroskast á nær öllum sviðum lífsins en haldið samt dauðahaldi í sömu hugmyndir um trú og hún hafði sem barn.

„Fólk getur þroskast á öllum sviðum lífsins nema í trú, af því að við höldum svo oft bara í það sem við þekkjum. Af hverju ætti trúin ekki líka að þroskast? Mér finnst miklu skrítnara að hugsa Guð bara sem einhvern karl á skýjunum. Það hlýtur að mega hugsa þetta miklu stærra.“

@dagurfannar1

Má prestur blóta!?

♬ upprunalegt hljóð - dagurfannar1

Þegar presturinn fer í sjamanisma

Þarna verður andleg leit Dags óvenjulegri. Hann hefur kynnt sér hugleiðslu og sjamanisma og sér ekki jafn djúpa gjá milli þeirra hugmynda og kristinnar trúar og margir myndu eflaust gera.

Hann tekur sérstaklega fram að hann líti ekki á sjamanisma einfaldlega sem ein trúarbrögð heldur sem safn mjög gamalla andlegra hefða. Sameiginlegur þáttur sé meðal annars það sem hann kallar andleg ferðalög, þar sem breytt vitundarástand er framkallað með til dæmis trommuslætti.

Hann lýsir þeirri aðferð sem hann hefur lært þannig að tromma sé slegin fjórum sinnum á sekúndu. Takturinn hjálpi huganum að komast í draumkennt ástand og geti auðveldað fólki að kalla fram myndir og upplifanir í huganum.

„Mér finnst þetta bara vera form af bæn. Það sem sjamanískar hefðir eiga líka sameiginlegt er hugmyndin um að allt hafi sinn anda, frá minnsta steini upp í stærsta fjall. Það er síðan þessi sýn að við getum átt einhvers konar samband við það. Fyrir mér er þetta ekki endilega jafn langt frá kristinni hugsun og fólk heldur.“

Dagur hefur einnig leitað út fyrir hefðbundna kristna trú og kynnt sér hugleiðslu og sjamanisma. Hann sér ákveðin líkindi milli sjamanískra aðferða og bænar og telur ekki nauðsynlegt að draga skarpa línu þar á milli.Vísir/Anton Brink

Hann tengir þetta meðal annars við panentheisma, hugmyndina um að Guð sé í öllu, utan um allt og á milli alls sem er. Hann vísar einnig í sköpunarsöguna þar sem Guð blæs lífi í manninn og veltir fyrir sér hvort þar megi sjá hugmynd um guðlegan neista í manneskjunni.

Þessi nálgun hefur þó ekki fallið öllum vel í geð. Dagur segist hafa fengið viðvaranir um að hann sé kominn út á hættulegt svæði.

„Ég hef alveg fengið gagnrýnisraddir sem segja að ég sé að snerta á einhverju mjög hættulegu. Ég skil vel að mjög bókstafstrúað fólk sé ekki tilbúið til að samþykkja þetta. Biblíuna er hins vegar hægt að lesa og túlka á ótrúlega marga vegu. Það er mjög erfitt að segja einfaldlega: Þetta er eina rétta túlkunin.“

Fyrir honum sé fjölbreytileikinn raunar innbyggður í kristnina. Mismunandi kirkjudeildir séu til vegna þess að fólk hefur aldrei verið sammála um allt, hvorki túlkun texta né hvernig trú skuli iðkuð.

@dagurfannar1 þarf að vera trúaður til að mæta í kirkju? hvað finnst þér? #fyp ♬ upprunalegt hljóð - dagurfannar1

„Við“ gegn „þeim“

Sú opna nálgun verður enn mikilvægari þegar talið berst að öðru fyrirbæri sem Dagur hefur áhyggjur af: vaxandi áhuga hluta ungra karla á kristinni trú sem blandast saman við mjög íhaldssama eða útilokandi hugmyndafræði.

Hann segist hafa hitt unga menn sem séu mjög trúaðir en jafnframt fullir af fordómum og telur að trúartextar séu stundum notaðir til að réttlæta hatur. Hann nefnir meðal annars ótta við íslam og segir auðvelt fyrir fólk að fylkja sér bak við krossinn þegar það upplifir utanaðkomandi ógn.

„Hlutverk okkar presta hlýtur að vera að móta unga fólkið sem leitar til okkar í átt að kærleiksboðskapnum, ekki leyfa þessu að verða fullt af hatri.“

Dagur segist jafnframt sjá áhyggjuefni í þróuninni erlendis, meðal annars í Bandaríkjunum og Evrópu, hvað varðar umræðu um réttindi kvenna og hinsegin fólks. Þótt staðan sé önnur hér á landi finnst honum sambærilegur tónn stundum heyrast í íslenskri umræðu.

Samfélagsmiðlarnir eru þar tvíeggjað sverð. Þeir geta búið til samfélag, opnað samtal og gert prest aðgengilegan manneskju sem myndi aldrei ganga inn á prestsskrifstofu. En sömu miðlar geta líka hlaðið hugmyndum og reiði ofan í notandann, myndskeið eftir myndskeið.

Dagur leggur áherslu á að kristni þurfi ekki að eiga einkarétt á svörunum. Hann telur ólíkar trúarhefðir, heimspeki og lífsskoðanir geta veitt fólki grundvöll til að takast á við stórar spurningar um líf, dauða og tilgang.Vísir/Anton Brink

Dagur telur að unga fólkið sem stendur í miðju þessa upplýsingaflæðis eigi erfiðara verkefni fyrir höndum en margar fyrri kynslóðir.

„Það er upplýsingaflæði áreiti alls staðar frá. Ég held að það sé flóknara að vera ungmenni í dag, og eiginlega líka flóknara að vera fullorðinn. Það er bara flóknara að vera til. Við erum alltaf að spyrja fleiri og fleiri spurninga.“

Þar telur hann trú, heimspeki og lífsskoðanir geta haft raunverulegt hlutverk, ekki sem tilbúna lausn á öllum vandamálum heldur sem vettvang fyrir spurningar sem nútíminn hefur ekkert endilega einfalt svar við.

Sú sem honum finnst mikilvægust er ótrúlega stutt: Hver er ég?

„Við getum skilgreint okkur út frá starfi, fjölskyldu, samböndum, stöðu og eignum. Ef ég tek sjálfan mig sem dæmi; ég er prestur, faðir, maki og sonur. En hvað gerist ef þessi lög eru tekin hvert af öðru? Ef við missum húsið, launin eða vinnuna, ef við missum fólkið í kringum okkur, hvað stendur þá eftir? Hver erum við þegar allt hitt er tekið frá? Mér finnst þetta vera grundvallarspurning. Trú, heimspeki og lífsskoðanir geta hjálpað okkur að glíma við hana.“

Til að útskýra þetta grípur Dagur svo í óvæntan guðfræðilegan bandamann: teiknimyndakarakterinn Shrek. „Tröll eru eins og laukar,“ sagði Shrek, og Dagur sér ákveðna heimspeki í líkingunni.

„Við flettum lögunum af, einu af öðru. En þegar öll félagslegu hlutverkin, titlarnir og ytri merkin eru farin, hvað verður eftir?“

Grunnur til að standa á

Dauðinn er ein af þessum stóru spurningum sem Dagur telur að trú og lífsskoðanir geti hjálpað fólki að takast á við. En til þess að velta fyrir sér dauðanum þurfi kannski fyrst að horfa á lífið sjálft: hvernig við ætlum að lifa því, hvað skiptir okkur raunverulega máli og hvaða þátt við viljum eiga í heiminum.

Þar þarf svarið ekki endilega að vera kristin trú. Dagur segir ólíkar trúarhefðir, heimspeki og lífsskoðanir geta gefið fólki verkfæri til að takast á við spurningarnar sem fylgja því einfaldlega að vera manneskja.

Samhliða því verður íslenskt samfélag sífellt fjölbreyttara. Dagur telur mikilvægt að fólk af ólíkum trúarbrögðum og með ólíkar lífsskoðanir hafi rými til að koma saman og iðka sína trú. Kirkja, moska og hof geti vel átt heima í sama samfélaginu.

Rauði þráðurinn í lífs- og trúarleit Dags er forvitni og viljinn til að halda áfram að spyrja spurninga.Vísir/Anton Brink

Það kemur honum heldur ekki sérstaklega á óvart að slíkar breytingar veki stundum ótta eða mótstöðu. Fólk eigi það til að óttast það sem það þekkir ekki. Einmitt þess vegna telur hann mikilvægt að samtalið haldi áfram, ekki aðeins innan kirkjunnar heldur líka við þau sem standa fyrir utan hana, eru efins, leitandi eða sannfærð um að trú eigi ekkert erindi við þau.

Þó svo að leið Dags hafi legið frá því að hata kristinfræði yfir í guðfræði, prestsstarf, hugleiðslu, sjamanisma og TikTok þá virðist rauði þráðurinn alltaf vera sá sami: að halda áfram að spyrja. Og kannski þarf maður ekki alltaf að finna endanlegt svar. Stundum dugar að finna eitthvað sem heldur manni stöðugum á meðan maður leitar.

„Ég held að stundum þurfum við bara einhvern grunn til að standa á. Trúarbrögð og lífsskoðanir geta hjálpað okkur að „navigera“ þessar spurningar, ekki bara hver ég er heldur líka hver tilgangurinn er. Annars er hætta á að við verðum svolítið eins og strá í vindi.“

#hataði #kristinfræði #presturinn #sem #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262933556d/presturinn-sem-hatadi-kristin-fraedi

📰 Aðrar fréttir

George Michael: Family row over dozens items up for auction
📅 29.10.2026 👁️ 0
George Michael: Family row over dozens items up for auction
The brother of the singer's late personal assistant says she would not have wanted the items to be sold.
Notch setur glæsihúsið á sölu - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 0
Notch setur glæsihúsið á sölu - Vísir
Sænski milljarðamæringurinn, sem er einnig þekktur sem „Notch“, greiddi sömu fjárhæð fyrir eignina þegar hann festi á henni kaup árið 2014, að því er ...
Fjar­lægðu mynd­skeið af golfhermi úr Kveiksþætti - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 0
Fjar­lægðu mynd­skeið af golfhermi úr Kveiksþætti - Vísir
Greint var frá því í kvöld að þætti Kveiks um einkarekin búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda hefði verið kippt út af vef Ríkisútvarpsins tíma...
Stórhættulegur morðingi slapp úr fangelsi – Óttast að hann drepi aftur
📅 28.10.2026 👁️ 1
Stórhættulegur morðingi slapp úr fangelsi – Óttast að hann drepi aftur
Stórhættulegur morðingi slapp úr fangelsi í Tennessee fylki á sunnudagskvöld. Þeir sem þekkja til óttast að hann muni drepa aftur þar sem hann hafi en...
Bolsonaro kveðst réttkjörinn forseti Brasilíu
📅 28.10.2026 👁️ 2
Bolsonaro kveðst réttkjörinn forseti Brasilíu
„Ég er réttkjörinn forseti og glæpamennirnir sem stálu kosningunum í Brasilíu tilheyra glæpasamtökum sem hafa komið á harðstjórn,“ sagði brasilíski fo...
Barnalæknir segir mistök að senda eins árs börn í leikskóla
📅 28.10.2026 👁️ 2
Barnalæknir segir mistök að senda eins árs börn í leikskóla
Norskur barnalæknir og prófessor við Háskólann í Ósló telur að börn eigi almennt ekki að hefja leikskólagöngu fyrr en við tveggja til þriggja ára aldu...
Sigurjón: „Það er verulegt áhyggjuefni“
📅 28.10.2026 👁️ 2
Sigurjón: „Það er verulegt áhyggjuefni“
Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, segir það verulegt áhyggjuefni að Karim Askari, formaður Stofnunar múslíma á Íslandi, fordæmi ekki skil...
King Charles shows off dance moves on second day of Caribbean tour
📅 28.10.2026 👁️ 2
King Charles shows off dance moves on second day of Caribbean tour
Earlier in the day, the King paid his respects to the island's fallen servicemen and women.
High-speed train crash kills at least 68 people in Spain
📅 28.10.2026 👁️ 2
High-speed train crash kills at least 68 people in Spain
The crash, between a moving train and another that was stopped further up the track, was caused by an "inexplicable" error, the transport minister sai...
Myndbroti úr golfhermi skipt út í nýjasta þætti Kveiks
📅 28.10.2026 👁️ 2
Myndbroti úr golfhermi skipt út í nýjasta þætti Kveiks
Stutt myndbrot innan úr golfhermi fyrirtækisins Gullkylfunnar birtist í Kveik í gærkvöldi.Myndefnið var tekið af samfélagsmiðli fyrirtækisins Vopnabúr...
Gagnrýni á frumvarp um leigubremsu komi ekki á óvart
📅 28.10.2026 👁️ 2
Gagnrýni á frumvarp um leigubremsu komi ekki á óvart
Leigufélög almennt óánægð með takmarkanir á leiguRagnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir mikilvægt að halda til haga fyrir hverj...
Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 2
Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið - Vísir
Tímaritið Life hóf göngu sína sem vikurit árið 1936 og fjallaði um stórviðburði, áhrifafólk og hversdagslegan veruleika 20. aldarinnar. Það náði hátin...
Death of US actress Hayden Panettiere ruled accidental, ending local police probe
📅 28.10.2026 👁️ 2
Death of US actress Hayden Panettiere ruled accidental, ending local police probe
The Heroes and Nashville star died in August from the toxic effects of fentanyl, Xanax and several other drugs.
Lýsa upp skammdegið með list
📅 28.10.2026 👁️ 2
Lýsa upp skammdegið með list
Hátíðin hefur verið haldin síðan um aldamót. Fjölmargir viðburðir eru á dagskrá á Austurlandi í tengslum við hátíðina.Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, ...
Stórtíðindi um árangurinn af þyngdarstjórnunarlyfinu retatrútíð - Er Ozempic búið að vera?
📅 28.10.2026 👁️ 2
Stórtíðindi um árangurinn af þyngdarstjórnunarlyfinu retatrútíð - Er Ozempic búið að vera?
Heimurinn bíður með eftirvæntingu eftir þyngdarstjórnunarlyfinu retatrútíð (einnig þekkt sem reta) sem lyfjaframleiðandinn Eli Lilly er nú með í klíní...
Þurft að dvelja í ein­angrunar­klefum vegna pláss­leysis - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 2
Þurft að dvelja í ein­angrunar­klefum vegna pláss­leysis - Vísir
Þetta kemur fram í skriflegu svari Rögnu Bjarnadóttur, forstjóra Fangelsismálstofnunar, við fyrirspurn fréttastofu. Nýlega var fjallað um kvörtun kven...
Heiða Ósk kemur Klettabæ til varnar: „Þá var barnið mitt gripið og öll fjölskyldan mín“
📅 28.10.2026 👁️ 2
Heiða Ósk kemur Klettabæ til varnar: „Þá var barnið mitt gripið og öll fjölskyldan mín“
„Þetta var þungur þáttur. Hann var þungur, ósanngjarn, einhliða og ég varð fyrir mjög miklum vonbrigðum,“ segir Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir, móðir ...
Stýrivextir ó­breyttir og stutt í kosningar - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 2
Stýrivextir ó­breyttir og stutt í kosningar - Vísir
Peningastefnunefnd bankans tilkynnti í dag að vextir yrðu hvorki hækkaðir né lækkaðir þrátt fyrir að litlar sem engar framfarir hafi orðið í baráttunn...
Losun gróðurhúsalofttegunda meiri á Íslandi en í öðrum Evrópulöndum
📅 28.10.2026 👁️ 2
Losun gróðurhúsalofttegunda meiri á Íslandi en í öðrum Evrópulöndum
Það er töluvert langt í land þegar kemur að losun gróðurhúsalofttegunda á mann á Íslandi borið saman við önnur lönd í Evrópu. Þörf er á samstilltu áta...
„Mér finnst það al­var­legt“ - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 2
„Mér finnst það al­var­legt“ - Vísir
Þetta segir Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um störf lögr...
Hvað eiga tveir kennarar sameiginlegt? Einn á Akureyri annar í Södertelje?
📅 28.10.2026 👁️ 2
Hvað eiga tveir kennarar sameiginlegt? Einn á Akureyri annar í Södertelje?
Hvað eiga tveir kennarar sameiginlegt? Einn á Akureyri annar í Södertelje? Fréttin28. október 2026InnlendarLeave a Comment Samsett mynd: Selma Gamalel...
Komi mest á óvart að Netanjahú hafi ekki tapað meira fylgi
📅 28.10.2026 👁️ 2
Komi mest á óvart að Netanjahú hafi ekki tapað meira fylgi
Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í sögu Miðausturlanda, segir það koma mest á óvart í þingkosningunum í Ísrael að Netanjahú hafi ekki tapað meir...
Leitar barna úr úrræðum í hverjum mánuði
📅 28.10.2026 👁️ 2
Leitar barna úr úrræðum í hverjum mánuði
Fjallað var um búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda í Kveik. Þar kom meðal annars fram að slíkum úrræðum hefur fjölgað úr einu í sjö á tíu áru...
Óvíst hvort fjármagn fylgi fjölgun lögreglumanna
📅 28.10.2026 👁️ 2
Óvíst hvort fjármagn fylgi fjölgun lögreglumanna
Lögreglumönnum fjölgað um 50 á hverju ári til 2031Fjölga á lögreglumönnum um 50 á ári samkvæmt nýrri löggæsluáætlun til ársins 2031. Þá eiga lögreglum...
Leikstjóri heimildarmyndar um Matthew Perry útskýrir hvers vegna Friends meðleikarar hans eru ekki með í henni
📅 28.10.2026 👁️ 3
Leikstjóri heimildarmyndar um Matthew Perry útskýrir hvers vegna Friends meðleikarar hans eru ekki með í henni
Ný heimildarmynd um Matthew Perry er nú komin á Netflix, en þar vantar nokkur mjög kunnugleg andlit.Í dag (28. október) eru liðin þrjú ár frá skyndile...
„Ég ætla alla­vega að deyja á Ís­landi“ - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 3
„Ég ætla alla­vega að deyja á Ís­landi“ - Vísir
Eyrún flutti út fyrir sex árum og býr með kærastanum sínum Oskari, sem er líka leikari. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Eyrún tókst á við sit...
Hafi ekki verið í form­legri heim­sókn í moskunni - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 3
Hafi ekki verið í form­legri heim­sókn í moskunni - Vísir
Tilefnið er frétt Morgunblaðsins frá því í gær um að Usmani hefði haldið trúarlegan fyrirlestur á samkomu Stórmoskunnar við Bústaðaveg í Reykjavík á m...
Man sentenced to more than 37 years for murder in south Tenerife
📅 28.10.2026 👁️ 3
Man sentenced to more than 37 years for murder in south Tenerife
The Provincial Court of Santa Cruz de Tenerife has sentenced a man to 37 years and six months in prison for murdering his partner’s brother, attemptin...
Kveiksþætti kippt út tímabundið - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 3
Kveiksþætti kippt út tímabundið - Vísir
„Hann er á leiðinni aftur inn,“ segir Ragnhildur Þrastardóttir, ritstjóri Kveiks, um þáttinn í samtali við Vísi. Hún segir að uppfæra hafi þurft mynde...
Evrópskir hlutabréfamarkaðir náðu sér eftir lækkun – óeirðir í Frakklandi og afkoma HSBC valda áhyggjum
📅 28.10.2026 👁️ 3
Evrópskir hlutabréfamarkaðir náðu sér eftir lækkun – óeirðir í Frakklandi og afkoma HSBC valda áhyggjum
Evrópskir hlutabréfamarkaðir náðu sér eftir lækkun – óeirðir í Frakklandi og afkoma HSBC valda áhyggjum Fréttin28. október 2026Erlent, Evrópusambandið...
Múslímavandi Samfylkingar
📅 28.10.2026 👁️ 3
Múslímavandi Samfylkingar
Múslímavandi Samfylkingar Fréttin28. október 2026Innlent, Páll Vilhjálmsson, PistlarLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Talsmaður Samfylkingar ...
Söfnuðust saman við sendi­ráðið og mót­mæltu refsiaðgerðum - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 3
Söfnuðust saman við sendi­ráðið og mót­mæltu refsiaðgerðum - Vísir
Í tilkynningu sem birt var á Facebook-síðu sendiráðsins kom fram að sendiráðið yrði opnað á réttum tíma í fyrramálið, fimmtudaginn 29. október. Þá vær...
Dæmdir fyrir að kveikja í Teslu-bifreið lögreglukonu
📅 28.10.2026 👁️ 3
Dæmdir fyrir að kveikja í Teslu-bifreið lögreglukonu
Þrír menn hafa verið sakfelldir í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að kveikja í Teslu-bifreið rannsóknarlögreglukonu hjá Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu....
What the Budget offers for under 25s - and what it leaves out
📅 28.10.2026 👁️ 3
What the Budget offers for under 25s - and what it leaves out
The chancellor announced a series of measures which will impact under-25 year-olds from housing to minimum wage.
Mótmæltu viðskiptaþvingunum Bandaríkjanna gegn Kúbu
📅 28.10.2026 👁️ 3
Mótmæltu viðskiptaþvingunum Bandaríkjanna gegn Kúbu
VÍK - Vináttufélag Íslands og Kúbu efndi til mótmæla fyrir utan bandaríska sendiráðið við Engjateig í dag. Mótmælin voru haldin vegna atkvæðagreiðslu ...
Flávio Bolsonaro lands in Miami after defeat in Brazil's presidential election
📅 28.10.2026 👁️ 3
Flávio Bolsonaro lands in Miami after defeat in Brazil's presidential election
His arrival in the US ends speculation about his whereabouts after he failed to comply with an order to surrender his passports.
Flávio Bolsonaro denies fleeing Brazil after landing in Miami
📅 28.10.2026 👁️ 0
Flávio Bolsonaro denies fleeing Brazil after landing in Miami
The defeated Brazilian candidate claims to be the victim of a coup d’état and political persecution, recycling unsubstantiated allegations of “elector...
Hyggst þyngja refsingar við að hag­nýta börn til af­brota - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 3
Hyggst þyngja refsingar við að hag­nýta börn til af­brota - Vísir
Þetta segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra Viðreisnar, í samtali við fréttastofu að loknum kynningarfundi þar sem ný löggæsluáætl...
„Séum til­búin þegar og ef þessi veru­leiki birtist okkur“ - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 3
„Séum til­búin þegar og ef þessi veru­leiki birtist okkur“ - Vísir
Þetta segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra Viðreisnar, í samtali við fréttastofu að loknum kynningarfundi þar sem ný löggæsluáætl...
Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lög­reglu­manns eftir allt saman - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 3
Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lög­reglu­manns eftir allt saman - Vísir
Í ákæru á hendur mönnunum þremur, sem hafa allir neitað sök, segir að um hafi verið að ræða Teslu Model 3, 2020 árgerð, sem var í eigu lögreglumanns o...
John Healey unveils £100 for energy bills and bank tax in first Budget
📅 28.10.2026 👁️ 3
John Healey unveils £100 for energy bills and bank tax in first Budget
The chancellor targets the cost of living amid global economic turmoil but opposition parties say he has not been bold enough.
Hasarmyndastjarnan orðin óþekkjanleg og búin að skipta um starfsvettvang
📅 28.10.2026 👁️ 5
Hasarmyndastjarnan orðin óþekkjanleg og búin að skipta um starfsvettvang
Leikkonan Jenette Goldstein, sem gerði garðinn frægan í hasarmyndum og vísindaskáldskap, á níunda og tíunda áratugnum er óþekkjanleg í dag. Hún hefur ...
Telja það samningsbrot að Kópavogsbær hafi málað yfir útilistaverk
📅 28.10.2026 👁️ 4
Telja það samningsbrot að Kópavogsbær hafi málað yfir útilistaverk
Stjórn Bandalags íslenskra listamanna telur að samningsbrot hafi átt sér stað þegar Kópavogsbær tók þá ákvörðun að mála yfir Sólarslóð, útilistaverk T...
Telja samningsbrot að Kópavogsbær hafi málað yfir útilistaverk
📅 28.10.2026 👁️ 3
Telja samningsbrot að Kópavogsbær hafi málað yfir útilistaverk
Stjórn Bandalags íslenskra listamanna telur að samningsbrot hafi átt sér stað þegar Kópavogsbær tók þá ákvörðun að mála yfir Sólarslóð, útilistaverk T...
Móðir fékk skammir frá skólanum fyrir að mæta í náttfötum að sækja barn - „Hvenær byrjaði skólinn að setja foreldrum klæðaburðarreglur?“
📅 28.10.2026 👁️ 5
Móðir fékk skammir frá skólanum fyrir að mæta í náttfötum að sækja barn - „Hvenær byrjaði skólinn að setja foreldrum klæðaburðarreglur?“
Móðir í bresku borginni Liverpool er bálreið eftir að hún fékk vandræðalegt bréf frá grunnskóla barnsins síns. Var henni bannað að mæta í náttfötunum ...
Hið opinbera gangi of langt í uppsögnum
📅 28.10.2026 👁️ 4
Hið opinbera gangi of langt í uppsögnum
Forseti ASÍ telur hið opinbera hafa gengið of langt í uppsögnum að undanförnu. Hann segir einkennilegt að vísa til þess að með uppsögnum sé verið að t...
Orðið á götunni: Veist þú með hvaða liði þú spilar?
📅 28.10.2026 👁️ 4
Orðið á götunni: Veist þú með hvaða liði þú spilar?
Hugmyndin um vestrænt lýðræði er falleg og því miður dálítið barnaleg. Við opnum kjörstaði, teljum atkvæði, treystum á fjölmiðla og gerum ráð fyrir að...
Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 5
Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi - Vísir
Á tímabilinu 6. maí til 21. september 2024 sveik starfsmaðurinn, í blekkingarskyni og án heimildar, út reiðufé að verðmæti 780 þúsund króna, að því er...
Meðalniðurgreiðsla Loftbrúar 9.242 krónur árið 2025
📅 28.10.2026 👁️ 5
Meðalniðurgreiðsla Loftbrúar 9.242 krónur árið 2025
Árið 2025 voru rétt rúmlega 80 þúsund flugleggir keyptir með Loftbrú.Kostnaður ríkisins við niðurgreiðsluna nam rúmlega 740 milljónum.Til stendur að g...
Healey buys himself some time, but big questions unanswered
📅 28.10.2026 👁️ 4
Healey buys himself some time, but big questions unanswered
The chancellor talked of charting a new course for Britain, but the impact of Iran war has limited his options.