Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ásamt þessum tveimur tilfellum, handtók lögreglan fimmtán ökumenn í nótt vegna gruns um ölvunar- og/eða fíkniefnaakstur um allt höfuðborgarsvæðið.
Í dagbókinni er einnig greint frá því að í umdæmi lögreglustöðvar eitt, sem sinnir verkefnum í Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og á Seltjarnarnesi, voru þrír kærðir fyrir líkamsárásir. Ekkert meira er gefið upp um þessar árásir í dagbókinni.
Þá segir að einn hafi verið kærður fyrir þjófnað á hóteli í sama umdæmi.