Veðurstofan spáir lægðagangi næstu daga, vinda- og vætusömu veðri með köflum, sem sagt umhleypingum.
Í textaspá veðurstofunnar segir að lægð dagsins dæli til okkar svölu lofti úr norðri með rigningu norðanlands. Á morgun hlýni heldur með suðaustanátt og þá rigni á Suður- og Vesturlandi.
„Á mánudag hallar hann sér aftur í norðrið með smá vætu norðaustantil, en á þriðjudag verðum við líklega á milli lægða og þá ætti að rofa víða til. Á miðvikudag er síðan búist við suðaustan- og austanátt með talsverðri rigningu,“ segir í spánni.
Umhleypingar næstu daga - Vísir