„Almáttugur, þetta er rosalegt áfall að lenda í svona,“ segir Guðrún Svava Pálmarsdóttir, 65 ára gömul íslensk kona, um svikin sem hún lenti í með leiguíbúð í Alicante á Spáni. Guðrún Svava borgaði fyrirtækinu Sammlind ehf. 360 þúsund krónur í apríl fyrir leigu á íbúð á Alicante í september og október.
Þegar hún lenti á Alicante í síðustu viku hélt hún að hún myndi fara í þessa íbúð sem hún var búin að borga fyrir. Við komuna til Alicante fékk hún hins vegar upplýsingar frá eiganda fyrirtækisins, Samúel Jóni Samúlessyni, að hún fengi ekki íbúðina.
Fréttir um svik þessa íslenska fyrirtækis í útleigu íbúða á Alicante hafa vakið nokkra athygli í vikunni eftir að fréttastofa greindi fyrst frá málinu á miðvikudaginn. Tíu einstaklingar hið minnsta hafa lent í því að tapa peningum á því að leigja íbúðir í Alicante af Sammlind ehf. Eigandi fyrirtækisins, áðurnefndur Samúel, hefur sagt við fréttastofu að Sammlind ehf. sé komið í greiðslustöðvun og geti ekki staðið við skuldbindingar gagnvart viðskiptavinunum.
Myndin sem er að teiknast upp er að fyrirtækið hafi til að byrja með staðið við skuldbindingar sínar gagnvart viðskiptavinum, að minnsta kosti að einhverju leyti. Þannig var fyrirtækið með gott orðspor árið 2024 en svo breyttust viðskiptahættir fyrirtækisins til hins verra. Þannig segir einn af viðmælendum fréttastofu, Halldór Svavarsson, að hann hafi leigt íbúð af fyrirtækinu á Spáni árið 2024 og verið ánægður með þjónustuna og að allt hafi staðist í viðskiptunum.
Fjallað er um þetta svikamál á Alicante í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér:
1100 tilfelli tilkynnt
Reglulega eru sagðar fréttir af sambærilegum tilfellum og Sammlindarmálinu í fréttum á Spáni.
Útvarpsstöðin Cadena Ser, sem er ein sú stærsta á Spáni, sagði til dæmis frá því í ágúst að karlmaður hefði verið handtekinn fyrir að leigja fólki íbúðir á Alicante og í Sevilla sem ekki voru til. Maðurinn auglýsti íbúðir á samfélagsmiðlum og svo höfðu áhugasamir leigjendur samband og voru beðnir um fyrirframgreiðslu. Samtals var maðurinn talinn hafa svikið þúsundir evra af fólki með þessum hætti.
Í febrúar sagði útvarpsstöðin sömuleiðis frá því að spænska lögreglan hefði handtekið þrjá menn í Alicante sem grunaðir voru um að leigja erlendum ferðamönnum út íbúðir sem þeir áttu ekki eða höfðu ekki umráðarétt yfir.
Svikin fóru þannig fram að mennirnir auglýstu íbúðir á samfélagsmiðlum sem þeir höfðu áður leigt sjálfir. Þeir kröfðust fyrirframgreiðslu á hluta af leiguverðinu. Þegar ferðamennirnir komu til Alicante sóttu mennirnir fólkið á flugvöllinn, tóku, keyrðu það í íbúðirnar, gerðu falskan leigusamning, tóku við restinni af leiguverðinu og létu fólkið hafa lykla að íbúðunum. Svikin komust svo upp þegar raunverulegir eigendur eða leigjendur íbúðanna komu á staðinn. Mennirnir voru taldir hafa svikið á bilinu þrjú til sex þúsund evrur af ferðamönnunum í hvert skipti með þessum hætti.
Í tölfræði frá spænska innanríkisráðuneytinu sem aðgengileg er á heimasíðu þess kemur fram að leigusvik í ferðamannaiðnaðinum séu algeng á Spáni.
Árið 2024 voru rúmlega 1100 tilkynningar um slík svik samanborið við rúmlega 1600 árið áður. Í lýsingum ráðuneytisins á því hvernig þessi svik fara fram er meðal annars talað um að óprúttnir aðilar leigi ferðamönnum út íbúðir sem ekki eru til og þeir leigi íbúðir sem þeir eiga ekki að hafa ekki umráðarétt yfir. Tekið er fram að eitt af einkennum slíkra glæpa gegn ferðamönnum sé að leigusalinn krefjist oft og tíðum fyrirframgreiðslu.
Þetta eru bara tilfellin sem tilkynnt eru til spænskra yfirvalda en svo eru vitanlega mörg slík mál sem eru það ekki. Þó að Sammlind ehf. hafi upphaflega verið fyrirtæki sem stóð sig í stykkinu þá eru ýmsar upplýsingar sem sýna fram á að þetta hafi gerbreyst.
Til að mynda er ekkert sem bendir til að áðurnefnd Guðrún Svava hafi nokkurn tímann átt að fá íbúðina sem hún greiddi tveggja mánað leigu fyrir.
Fréttastofa hefur sömuleiðis rætt við mann sem greiddi nú í ágúst 400 þúsund krónur fyrir íbúð sem Sammlind hafði ekki umráðarétt yfir heldur önnur spænsk leigumiðlun.
Hið minnsta tveir munu kæra
Maðurinn sem sagði fréttastofu frá því í vikunni að hann hefði greitt Sammlind 400 þúsund krónur fyrir íbúð á Alicante um miðjan ágúst en að hann hefði svo komist að því í kjölfarið að annað leigufyrirtæki leigi íbúðina út ætlar að kæra Samúel Jón Samúelsson. Maðurinn átti að fara til Alicante nú í september en fer eðlilega ekki þar sem hann fær ekki aðgang að íbúðinni sem hann borgaði fyrir. Þessi maður hefur haft samband við lögregluna símleiðis vegna málsins og ætlar að kæra það með formlegum hætti í kjölfar þartilgerðrar skýrslutöku.
Guðrún Svava Pálmarsdóttir ætlar líka að kæra Samúel. „Ég mun kæra hann. Ég veit að ég fæ ekkert þessa peninga til baka. En ég mun samt leggja fram kæru.“
Halldór Svavarsson segist vera að íhuga hvort hann muni kæra Samúel eða ekki.