„Landverðirnir urðu bara varir við það að það var mikið olíusmit á nokkrum bílastæðum og röktu nánast slóðina upp á Hak þar sem bíllinn míglak olíu. Þeir báðu bílstjórann vinsamlegast um að halda kyrru fyrir og óska eftir nýrri rútu. Það væri ekki forsvaranlegt að hún keyrði í bæinn,“ segir Einar.
Þetta segir Einar Á. E. Sæmundssen þjóðgarðsvörður á Þingvöllum. Hann segir lekann hafa verið talsverðan.
Telur rútuna hafa ekið lekandi um allt Suðurlandið
Hann segir atvikið bagalegt enda ekki gott að olía berist út í náttúruna. Svona lagað komi stöku sinnum fyrir og landverðir séu með þar til gerðan búnað til þess að þrífa olíuna upp.
En það sem okkur fannst nú kannski mest ámælisvert var að bílstjórinn upplýsti um að hann hefði óskað eftir nýrri rútu daginn áður vegna þess að þá lak hún enn meira í Skaftafelli einhvers staðar á Suðurlandi. Þannig að hún var búin að vera að aka um allt Suðurlandið lekandi olíu á öllum bílastæðunum.
Í engu samræmi við stefnu fyrirtækisins
Rútan var á vegum Arctic Adventures. Ásgeir Baldurs, forstjóri fyrirtækisins segist harma atvikið. Mannleg mistök hafi valdið því að rútan hafi ekki verið kölluð inn. Starfsmaður hafi vanmetið aðstæður.
Atvikið sé í engu samræmi við stefnu fyrirtækisins um umhverfisvernd. Arctic Adventures taki því mjög alvarlega og hyggist fara yfir verkferla. Fyrirtækið greiði fyrir þrifin.
„Okkur þykir þetta afskaplega leitt.“
Getur lekið út í jarðveginn í kring
Einar telur starfsfólk þjóðgarðsins að mestu hafa náð að hreinsa upp olíuna. Hún geti þó borist með fólki af bílastæðunum.
„Það sem gerist oft þegar það er blautt er að þá magnast smitið upp, það sést mikið. Svo náttúrulega margfaldast þetta og getur lekið út í jarðveginn í kring.“
Einar segir þjóðgarðinn munu senda fyrirtækinu reikning vegna þrifanna. Hann segir til skoðunar hvort tilefni sé til þess að tilkynna þurfi málið til lögreglu og heilbrigðiseftirlitsins.