Í hlaðvarpsþáttum sínum Menn eins og við tækla þeir Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason ýmsar áskoranir og aðhlátursefni þess sem fylgir því að vera miðaldra karlar í Garðabænum. Í nýjasta þættinum sem var að koma á hlaðvarpsveitur tóku þeir upp og lásu yfir lista með fimmtán atriðum sem eiga að skilgreina raunverulegan lúxus eða lífsgæði fullorðinsáranna.
„Hvað eru raunveruleg lífsgæði á miðjum aldri?“