Fyrr á þessu ári var tilkynnt um að Reykjanesbær myndi kaupa hluta af lóð og eignum kísilversins í Helguvík sem í ljósi forsögunnar er líklega óhætt að kalla umdeilt eða jafnvel alræmt. Kaupverðið sem bærinn greiðir er yfir tvöfalt hærra en seljandinn greiddi fyrir alla lóðina og allar fasteignir verksmiðjunnar, sem á lóðinni stóðu, fyrir rétt um ári síðan.
Reykjanesbær kaupir hluta af lóð og eignum kísilversins umdeilda á yfir tvöfalt hærri upphæð en seljandinn greiddi fyrir allt