Baðlónin standa sterkt meðan eigendur mótmæla nýju skattþrepi
Íslensk baðlón hafa vaxið hratt á undanförnum árum og flest þeirra skila nú verulegum hagnaði. Stjórnvöld telja ekki lengur ástæðu til að baðlón njóti lægra þreps virðisaukaskatts og ætla að færa þau í almenna skattþrepið. Eigendur og stjórnendur baðstaðanna mótmæla því af miklum móð.
Íslenski baðlónamarkaðurinn stendur sterkt eftir öran vöxt síðustu ára. Nýjustu ársreikningar sýna að flest stærstu baðlón landsins eru rekin með myndarlegum hagnaði og milljarðar hafa ratað í vasa eigenda þeirra í formi arðs á síðustu árum. Eigendur lónanna virðast líka hafa trú á að greinin geti vaxið enn meira, því víða hafa milljarðar króna farið í stækkun, endurbætur, nýja baðstaði og fjölbreyttari þjónustu við staðina.
Nýbirtir ársreikningar fyrir síðasta rekstrarár sýna að Sky Lagoon hagnaðist um 1,6 milljarða króna á síðasta ári og greiddi eigendum 1,4 milljarða í arð og ætlar að greiða 1,5 milljarða króna til viðbótar í arð í ár. Gamla laugin á Flúðum hagnaðist um 318 milljónir af 833 milljóna tekjum. Skógarböðin skiluðu 248 milljóna hagnaði, Jarðböðin við Mývatn 210 milljónum og Vök rúmlega 100 milljónum.
Stærsti aðilinn, Bláa lónið, sneri jafnframt úr tapi árið 2024 í tæplega milljarðs króna hagnað á síðasta ári, eftir að náttúruhamfarir …