Forstjóri selur höll á toppverði

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, hefur sett glæsilegt einbýlishús við Laugarásveg í Reykjavík á sölu. Ásett verð eignarinnar er 350 milljónir króna.
Húsið var byggt árið 1959 og stendur hátt á gróðursælli lóð. Það er falið frá götu og ekið er upp botnlanga að hellulagðri innkeyrslu. Frá efri hæð hússins er víðáttumikið útsýni yfir Laugardalinn.
Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, sjónvarpsherbergi, vinnuherbergi, fjögur baðherbergi, þvottahús, eldhús og þrjár stofur. Þá fylgir eigninni um 30 fermetra bílskúr.
Aðalstofur hússins eru á efri hæð og einkennast af mikilli lofthæð og útsýni. Úr þeim er gengið út á stórar suðursvalir. Samkvæmt fasteignaauglýsingu eru stofurnar það rúmgóðar að þar megi halda standandi veislur fyrir allt að 80 til 100 manns.
Á neðri hæðinni eru meðal annars fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi og sjónvarpsstofa. Hjónaherbergið er með sérbaðherbergi og stórum fataskápum. Á millipalli er vinnuherbergi eða skrifstofa sem einnig mætti nýta sem svefnherbergi.
Eldhúsið er rúmgott og opið inn í stóra borðstofu. Fallegur timburstigi tengir hæðir hússins saman en einnig er sérinngangur á efri hæð frá norðurhlið þess.
Umhverfis húsið er gróinn garður og timburpallur sem snýr í suður. Innkeyrslan er hellulögð og með hitalögnum og er að sögn auðvelt að leggja fjórum bifreiðum á lóðinni auk þess sem bílskúr fylgir eigninni.