Betur fór en á horfðist þegar fjöldinn allur af fiskikörum tókst á loft í Norðfjarðarhöfn í Neskaupstað í morgun. Sigurjón Geir Sveinsson, starfsmaður á fiskmarkaði, komst naumlega undan körunum er hann ók lyftara á höfninni.
„Þegar þetta er að byrja kemur þetta svona eins og alda bara,“ segir Sigurjón Geir. „Auðvitað hafa einhver kör fokið til og svona. En ég hef ekki lent í svona áður.“
Á vef Veðurstofu Íslands segir að búast megi við snörpum vindhviðum á Austurlandi í dag. Því geti verið varasamt að aka ökutækjum sem taka á sig mikinn vind í landshlutanum.
„Sagði heyri í þér seinna og spólaði í burtu“
Sigurjón Geir byrjaði að vinna klukkan 8 í morgun.
„Þá var nú smá vindur en svo byrjaði það að aukast, fóru að koma svona hviður eða veðursprengjur. Ég var að landa þarna úr tveimur bátum, var bara að klára það og ganga frá og raða þessu upp og var að fara að setja girðingar fyrir þetta, fyrir veðrið. Þá kemur bara þessi sprengja og það fer allt af stað.“
Hann náði að keyra undan í tæka tíð en þó lentu einhver fiskikör á lyftaranum.
„Ég var í símanum þegar þetta skellur á. Það eina sem kom upp úr mér var bara „Helvítis fokking fokk“. Svo skellti ég bara á, sagði „Heyri í þér seinna“ og spólaði í burtu,“ segir Sigurjón Geir.
Hann er frá Eskifirði en hefur starfað í Neskaupstað í nokkur ár. Hann segir að í vissum vindáttum komi snarpar vindhviður.
„Það fór eitthvað af körum í sjóinn. Ég tók saman það sem maður gat, sem var á víð og dreif, og svo voru steingirðingarnar bara keyrðar í þetta. Við skoðum þetta þegar lægir á morgun.“