Þrír verða kærðir fyrir líkamsárásir í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi og í nótt. Líkamsárásirnar þrjár eru óskyldar. Enginn særðist alvarlega í árásunum.
Heimir Ríkarðsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir þetta.
Fyrsta líkamsárásin var um ellefu í gærkvöldi á Laugarveginum. Menn áttu í ágreiningi og annar sló hinn í andlitið og sparkaði í hann. Árásarmaðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöð. Málið er til rannsóknar.
Önnur árásin var um fjögur í nótt þar sem var slegið og sparkað í mann utandyra. Gerandinn var ekki handtekinn en vitað er hver hann er.
Þriðja líkamsárásin var um fimm leytið í nótt. Ekkert er vitað um tildrög þeirrar árásar en lögregla hefur upptöku af henni. Menn áttu í ágreiningi og rifrildi sem lauk með því að annar kýldi hinn. Sá var handtekinn og færður í fangaklefa.