Landvörður í Eldgjá segir snjó hafa kyngt niður í gær og að landverðir hafi ráðlagt nokkrum ferðamönnum á illa búnum bílum að snúa við. Það hafi snjóað talsvert minna í Landmannalaugum en í Eldgjá og snjórinn strax farinn að leystast í dag.
Sif Arnardóttir landvörður segir óvana ferðamenn, sem voru á leið um Fjallabaksleið milli Landsmannalauga og Eldgjár, hafa snúið við vegna þess að þeir sáu veginn ekki lengur fyrir snjó.
Þeir sem hafi verið á betur búnum bílum og vanir íslenskum veðuraðstæðum hafi þó farið létt af með ferðina. „Ég mætti Norðmönnum sem höfðu keyrt þetta og sögðu að þetta hefði ekki verið neitt mál.“
Aðspurð segir Sif ekki óalgengt að það snjói í toppa í september en almennt snjói ekki svo mikið á þessum árstíma. „Þetta var svolítið skrítið.“