Fyrsta mál á dagskrá bæjarstjórnarfundar í Hafnarfirði í vikunni var kosning í fjölmenningarráð bæjarins. Allir bæjarfulltrúar samþykktu kosningu þeirra aðila sem tilnefndir voru nema bæjarfulltrúi Miðflokksins sem sat hjá. Lagði hann fram bókun í kjölfarið þar sem hann gagnrýndi tilvist fjölmenningarráðs, sagði það þjóna litlum tilgangi, starfsmenn bæjarins og önnur ráð gætu sinnt verkefnum þess og að ekki hefðu verið færð nægjanleg rök fyrir því að réttlætanlegt væri að leggja ráðinu til fjármuni úr bæjarsjóði.
Fulltrúi Miðflokksins einn á móti fjölmenningarráði og segir það tilgangslaust