Fundu 300 gullstangir á heimili starfsmanns CIA

Fyrrverandi starfsmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA, sem var handtekinn eftir að hundruð gullstanga og háar fjárhæðir í reiðufé fundust á heimili hans, á nú í viðræðum við bandaríska dómsmálaráðuneytið um mögulegt samkomulag í sakamáli hans.
David Rush, sem starfaði hjá CIA í 17 ár, og alríkissaksóknarar greindu dómstóli frá því á föstudag að samkomulag um játningu lægi fyrir í meginatriðum. Óskað hefur verið eftir því að frestur í málinu verði framlengdur til 8. október svo hægt verði að ganga frá nauðsynlegum gögnum, þar á meðal sameiginlegri greinargerð um málsatvik.
Leonie Brinkema, alríkisdómari sem fer með málið, hafði áður gefið til kynna að frestur yrði ekki framlengdur fram yfir 17. september.
Rush var handtekinn í maí eftir að alríkislögreglumenn gerðu húsleit á heimili hans. Þar fundust að sögn um 300 gullstangir, sem metnar voru á um 40 milljónir Bandaríkjadala, auk tveggja milljóna dala í reiðufé og 35 lúxusúra.
Rush gegndi háttsettu starfi innan vísinda- og tæknideildar CIA. Nokkrir háttsettir starfsmenn stofnunarinnar voru sendir í leyfi í kjölfar handtöku hans.
Verði samkomulagið samþykkt gæti það leitt til þess að ýmis gögn og upplýsingar um málið komi ekki fram við opinber réttarhöld.