Lögregla í Frakklandi telur að skemmdarverk á lestarteinum hafi orðið til þess að lestarslys varð í norðvesturhluta landsins í gær. 44 slösuðust. Meðal þeirra var 18 ára stúlka sem slasaðist alvarlega. Bútur úr brautarteinum fannst á vettvangi og því rannsakar lögregla hvort átt hafi verið við teinana.
Lestin var á leið frá Rúðuborg til Caen þegar hún fór út af sporinu. 186 farþegar voru um borð.