Áætlað er að stækka verknámshús Fjölbrautaskóla Suðurnesja um 1.800 fermetra. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, undirrituðu viljayfirlýsingu þess efnis í dag. Áformað er að framkvæmdir hefjist upp úr áramótum.
Þetta segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðs Íslands.
„Með stækkuninni er stefnt að því að bæta aðstöðu nemenda og kennara, efla verk- og starfsnám á Suðunesjum og í nærsveitum og styrkja tengsl náms við þarfir atvinnulífsins á svæðinu,“ segir þar.
Þörf hefur verið á að bæta aðstöðu Fjölbrautaskóla Suðurnesja í fjölda ára. Í apríl á þessu ári sagði þáverandi skólameistari skólans, Kristján Ásmundsson, af störfum vegna húsnæðismálanna sem hann sagði nauðsynlegt að gera úrbætur á.
Ríkissjóður greiðir 60% stofnkostnaðar stækkunar verknámshússins og sveitarfélögin á Suðurnesjum greiða hin 40%, samkvæmt lögum um framhaldsskóla.
Liður í að efla verk- og starfsnám á Íslandi
Á vef Stjórnarráðsins segir að undirbúningur að stækkun verknámshússins hafi staðið yfir undanfarin ár.
Viljayfirlýsingin leggi grunninn að því að hefja framkvæmdir á grundvelli frumathugunar Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna. Reykjanesbær mun, fyrir hönd Sambands íslenskra sveitarfélaga, hafa umsjón með framkvæmdunum.
Verkefnið er hluti af atvinnustefnu stjórnvalda til að efla verk- og starfsnám á Íslandi.
„Samhliða uppbyggingu Fjölbrautaskóla Suðurnesja er unnið að stækkun verknámsaðstöðu Fjölbrautaskólans í Breiðholti sem lýkur nú í haust og 1.500 fermetra viðbyggingu við Verkmenntaskólann á Akureyri,“ segir í tilkynningunni.
Sveitarfélagið Skagafjörður vinni að undirbúningi stækkunar Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
„Ráðuneytið vinnur jafnframt að uppbyggingu nýs þrjú þúsund fermetra Tækniskóla á höfuðborgarsvæðinu og rúmlega þúsund fermetra stækkun verk- og starfsnámsaðstöðu við Menntaskólann á Ísafirði.“
Samstarf sveitarfélaga og ríkis
Haft er eftir Ingu Sæland að þörf sé á að tala verk- og starfsnám upp.
„Þessi stækkun er einmitt slíkt skref, fjárfesting í unga fólkinu, atvinnulífinu og framtíð Suðurnesja. Ég fagna sérstaklega því hversu myndarlega sveitarfélögin á svæðinu koma að verkefninu. Þegar ríki, sveitarfélög og skólarnir taka höndum saman þá getum við látið hlutina gerast,“ er haft eftir Ingu Sæland.
Þá er haft eftir Vilhjálmi að ánægjulegt sé að sjá verkefnið loks verða að veruleika.
„Við fögnum því jafnframt að framkvæmdin verði í höndum sveitarfélaganna á Suðurnesjum. Það er skynsamlegt að verkefni sem þessu sé stýrt úr heimabyggð, í nálægð við skólann, notendur húsnæðisins og atvinnulífið sem verknámið þjónar,“ er haft Vilhjálmi.