Í gær var þess minnst að þá voru 25 ár liðin frá banvænustu hryðjuverkaárás sögunnar þegar þremur breiðþotum var flogið á The World Trade Center í New York í Bandaríkjunum og varnarmálaráðuneytið í Washington. Fjórða vélin brotlenti en talið er líklegt að fljúga hafi átt henni á opinbera byggingu og hefur þinghús Bandaríkjanna verið nefnt í því samhengi. Rétt undir 3.000 manns létust í árásunum og enn fleiri hafa fallið síðan vegna sjúkdóma af völdum árásanna. Á minningarathöfn í gær í New York var maður að nafni Michael Massaroli jr. meðal þeirra sem tóku til máls.
Hann missti föður sinn 11. september - Hvetur til þess að árásirnar verði ekki nýttar til útbreiðslu haturs