Björgunarsveitir á Vesturlandi voru kallaðar út í hæsta forgangi laust eftir klukkan fjögur í dag vegna bráðra veikinda göngumanns á Snæfellsnesi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og lenti með manninn á Landspítalanum núna á sjöunda tímanum.
Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir björgunarsveitirnar Elliða, Klakk og Bererki hafa komið að björguninni.
Maðurinn hafi verið með gönguhópi við Geithellistungur á Snæfellsnesi þegar hann veiktist skyndilega.
Hvorki upplýsingafulltrúi Landsbjargar né Landhelgisgæslan gátu veitt frekari upplýsingar um líðan mannsins.