Margrét Tryggvadóttir rithöfundur, formaður Rithöfundasambands Íslands og fyrrum alþingismaður spyr í Facebook-pistli, sem hefur vakið þó nokkra umræðu, hvers vegna hafi ekki verið sú leið farin að fá íslenskan höfund til að rita bók um fjármálalæsi í stað þess að Seðlabankinn kynni erlenda bók sem ætluð er að kenna íslenskum börnum á aldrinum 5-7 ára fjármálalæsi. Bókin er seld á kostnaðarverði og höfundurinn fær ekkert greitt fyrir íslenska þýðingu bókarinnar. Margir, þar á meðal rithöfundar, taka undir með Margréti.
Furða sig á að erlend bók um íkorna og akörn sé notuð til að kenna íslenskum börnum fjármálalæsi