Úrslit þingkosninga í Svíþjóð á morgun gætu orðið söguleg. Allar líkur eru taldar á að mjótt verði á munum milli fylkinga.
Svíar ganga að kjörborðinu á morgun í afar spennandi kosningum. Þar verður meðal annars kosið um hverjir munu sitja á Riksdagen, sænska þinginu, næstu fjögur árin. Útlit er fyrir að aðeins örfá prósentustig geti ráðið því hvort rauðgræna stjórnarandstöðublokkin sigrar eða hvort núverandi minnihlutastjórn hægriflokkanna heldur völdum.
Hægri flokkarnir hafa saxað á forskot rauðgrænu blokkarinnar
Marcus Oscarsson, stjórnmálaskýrandi hjá TV4 í Svíþjóð, segir að rauðgræna blokkin, ásamt Jafnaðarmönnum, hafi haft mikið forskot fram á mitt sumar. Síðan hafi hægri flokkarnir sótt í sig veðrið og núna sé þetta mjög jafnt.
„Það ræðst af því að hægri flokkarnir hafa stillt saman strengi sína en vinstri flokkarnir eru sundraðri,“ sagði hann í viðtali við Urði Örlygsdóttur, fréttamann, í Stokkhólmi í dag.
Í ár hefur ekkert einstakt mál einkennt kosningabaráttuna. Það hefur hins vegar mikil áhersla verið lögð á velferðarmál, svo sem efnahagsmál, heilbrigðismál og menntamál. En hvað skiptir almenning í Svíþjóð mestu máli? Fólk á förnum vegi í Stokkhólmi í dag nefndi líka umhverfismál, réttarkerfi, atvinnumál og innflytjendur.
„Mikilvægast í mínum huga er að kjósa aftur manneskjulega Svíþjóð, að koma stjórninni frá, sem hefur setið í fjögur ár,“ sagði Tommy Strandhel í dag.
Fylkingar deila um efnahagsmálin
Oscarsson segir efnahagsmálin mikilvæg í huga kjósenda. „Hægri flokkarnir telja sig best fallna til að berjast gegn afbrotum og að stemma stigu við innflytjendum.“ Hann segir vinstri flokkana, þá rauðgrænu, telja sig vera fremri í heilbrigðismálum, loftslagsmálum og umönnun aldraðra. „Svo er mikið deilt um efnahagsmálin þar sem báðar fylkingarnar telja sig annarri betri. Hægri menn vilja lækka skatta og efla atvinnulífið en vinstri menn horfa til vissra skattahækkana fyrir heilbrigðiskerfið og öldrunarmálin.“
Svíþjóðardemókratar mögulega í ráðherrastólum í fyrsta sinn
Kosningarnar í ár gætu orðið sögulegar að mörgu leyti, meðal annars fyrir þær sakir að Svíþjóðardemókratar gætu mögulega farið inn í ríkisstjórn í fyrsta sinn.
„Svíþjóðardemókratar gætu komist til mikilla áhrifa,“ segir Oscarsson. „Þeir hafa möguleika á að verða stærsti hægri flokkurinn og komast þá að stjórnartaumunum í fyrsta skipti. Það skýtur kjósendum til vinstri skelk í bringu og Sósíaldemókratar
fara nú fram og benda á að Svíþjóðardemókratar gætu fengið tólf af 24 ráðherraembættum.“
Oscarsson segir að ef hægriblokkin hafi betur verði þetta einfalt. „Þá verða það hægri
flokkarnir fjórir, en ef vinstrið sigrar þá verður Magdalena Andersson að sýna að hún sé heimsmeistari í að fá miðjuna til liðs við sig. Ég held það takist, en það verður ekki einfalt.“