Hólmfríður Magnúsdóttir safnar nú í framtíðarsjóð fyrir litlu „systur“ sína, Kolfinnu Rán Færseth.
„Kolfinna Rán er 13 ára gömul og greindist fyrst með krabbamein aðeins 2 og hálfs árs. Þá gekk hún í gegnum 6 mánaða lyfjameðferð og yfir 30 geislameðferðir, þar sem hún þurfti að vera svæfð í hvert skipti. Hún sigraði það, enda algjör nagli.
Í lok júlí á síðasta ári greindist Kolfinna aftur. Í ágúst hóf hún 8 lyfjagjafir, flaug síðan til Svíþjóðar í desember og gekkst undir mikla aðgerð þar sem stór hluti af lærleggnum upp í mjaðmakúlu var fjarlægður og íhlutur settur í staðinn. Að auki þurfti að fjarlægja tvo af stóru vöðvunum í lærinu. Eftir aðgerðina hefur hún klárað 10 lyfjagjafir til viðbótar.Ný óvissa tók svo við og í vikunni gekkst hún undir aðgerð þar sem fjarlægður var blettur úr lunganu og sepi þar við hlið.“

Í færslu sinni á Facebook segir Hólmfríður Kolfinnu hafa sýnt ótrúlegan styrk og hún láti ekkert stöðva sig.
Eins og glöggir tóku eftir var orðið systir í gæsalöppum hér í fyrstu línu. Beðin um að útskýra tengsl þeirra Kolfinnu segir Hólmfríður í samtali við DV:
„Olga og Pála [Olga Færseth og Pálína Guðrún Bragadóttir, mæður Kolfinnu] og tóku mig að sér og ég bjó hjá þeim í um 10 ár. Þær eru því ekki bara góðir vinir mínir, þær eru fjölskyldan mín. Þegar ég var yngri hafði ég ekki alltaf þann stuðning sem ég þurfti. En á seinni árum fékk ég stuðning, öryggi og gott uppeldi hjá Olgu og Pálu á mikilvægum tímum í lífi mínu. Fyrir það verð ég þeim alltaf óendanlega þakklát. Kannski er það þess vegna sem mér finnst Kolfinna vera eins og litla systir mín. Ég hef haldið jól, áramót og fleira með þeim.
Ég var líka með söfnun þegar hún greindist með krabbamein aðeins tveggja og hálfs árs gömul og hef fylgst með þeirra baráttu í gegnum árin. Þess vegna skiptir mig svo miklu máli að geta lagt mitt af mörkum og stutt þessa yndislegu fjölskyldu á þeirri vegferð sem þau eru á.“

Um Kolfinnu segir Hólmfríður: „Hún er mín uppáhalds stelpa, skapið, krafturinn og baráttan í henni er ólýsanleg.“
Hólmfríður safnar nú í framtíðarsjóð fyrir Kolfinnu með styrktarlottói sem hefst í næstu viku.
„Ég er komin með 100 veglega vinninga ótrúlegt hvað allir á landinu eru að hjálpa. Og ótrúlega margar treyjur frá liðum og þau eru öll að merkja áfram Kolfinna númer 3.“

Fyrirtæki á Akureyri, Húsavík og í Reykjavík og Vestmannaeyjum hafa gefið vinninga. Og fjölmörg lið og íþróttafólk gefið treyjur.
Þeir sem vilja gerast styrktaraðilar, fyrirtæki eða íþróttafólk með því að gefa vinning geta haft samband við Hólmfríði til 1. júní í síma 898-5903 eða með tölvupósti: holmfridurmagnus84@gmail.com
„Öll aðstoð skiptir máli og er metin af öllu hjarta.“
