Það hefur tekið verulega á að fylgjast með afbökunum og útúrsnúningum nei-sinna í ofsafenginni kosningabaráttu þeirra. Pistlahöfundur hugsaði um tíma með sér að það væri langt síðan hún hefði horft upp á annað eins. Maður getur verið svo fljótur að gleyma. Svo mundi hún eftir Íslandsmetinu í málþófi sem stjórnarandstaðan setti fyrir rétt rúmu ári í umræðum á Alþingi um veiðigjaldafrumvarpið. Þar sýndi stjórnarandstaðan allar sínar verstu hliðar, en var samt býsna stolt af sjálfri sér.
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Met stjórnarandstöðunnar