Þetta kemur fram í tilkynningu á vef ráðuneytisins.
Þar segir að Bryndís hafi sjálf óskað eftir flutningi og sé hann gerður á grundvelli 2. mgr. 36. gr. starfsmannalaga nr. 70/1996.
„Ráðherra hefur jafnframt ákveðið að Kolbeinn Árnason skrifstofustjóri á skrifstofu auðlinda flytjist í starf ráðuneytisstjóra frá sama tíma, sbr. 1. mgr. 36. gr. sömu laga.
Kolbeinn er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og AMP gráðu frá IESE Business School í Barcelona. Á árum áður gegndi Kolbeinn starfi skrifstofustjóra alþjóðaskrifstofu sjávarútvegsráðuneytisins, hann var fulltrúi sjávarútvegsráðuneytisins hjá fastanefnd Íslands við Evrópusambandið í Brussel og skrifstofustjóri á skrifstofu fiskveiðistjórnunar í sjávarútvegsráðuneytinu.
Þá var Kolbeinn yfirlögfræðingur og framkvæmdastjóri lögfræðideildar skilanefndar og slitastjórnar Kaupþings og framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Kolbeinn starfaði jafnframt sem lögmaður og sat í stjórnum ýmissa fyrirtækja.
Árið 2020 var Kolbeinn skipaður skrifstofustjóri á skrifstofu matvæla í matvælaráðuneytinu og tók við nýrri skrifstofu auðlinda í atvinnuvegaráðuneytinu árið 2025. Kolbeinn hefur verið staðgengill ráðuneytisstjóra frá 2021,“ segir í tilkynningunni.