Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur flutt Kolbein Árnason úr stöðu skrifstofustjóra í ráðuneytinu í embætti ráðuneytisstjóra. Hann tekur við af Bryndísi Hlöðversdóttur sem flyst í starf sérfræðings í ráðuneytinu.
Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að Bryndís hafi óskað eftir flutningi og ráðherra hafi nýtt heimild í starfsmannalögum til að flytja Kolbein til í starfi.
Kolbeinn hefur lengi starfað hjá ráðuneytinu. Hann starfaði líka hjá skilanefndum og slitastjórn Kaupþings. Hann var fyrsti framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi frá stofnun þeirra 2014 til ársins 2016.