Umræðu á Alþingi um ráðgerða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið mun ekki ljúka í dag nema samkomulag um að ljúka viðræðum muni nást við þingflokk Miðflokksins.
Þetta segir Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður flokksins, í samtali við mbl.is.
Tíminn er naumur til afgreiðslu tillögunnar ef dagsetning þjóðaratkvæðagreiðslunnar, 29. ágúst, á að standast. Nefndardagar eru í þinginu næstu tvo daga og þarf umræðunni því að ljúka í dag. Sigríður segir þó margt sem þurfi að ræða svo unnt sé að ljúka umræðum.
Sjálfstæðismenn taka ekki til máls
Athygli vekur að allir þingmenn Miðflokksins eru á mælendaskrá um málið en þingmenn annarra stjórnarandstöðuflokka virðast ekki ætla að taka til máls í umræðum dagsins.
„Sjálfstæðisflokknum einhverra hluta vegna er mikið í mun að ljúka þessari umræðu, skýringin á því kom kannski fram í dag. Miðflokkurinn á eftir að koma mörgum sjónarmiðum á framfæri í þessari umræðu og mun gera það alveg óhikað, eins og þurfa þykir,“ segir Sigríður.
Eins og áður segir er ekki mikill tími til stefnu til að afgreiða tillöguna en Sigríður segir tímapressuna vera sjálfskipaða af hálfu ríkisstjórnarinnar.
„Það hefur ekki komið fram af hverju í ósköpunum þessi dagsetning, 29. ágúst, er valin. Þetta er skemmsti fyrirvari sem lög leyfa. Þetta er mjög óvanalegt og það er mjög undarlegt að geta ekki svarað því af hverju þessi dagsetning varð fyrir valinu.“
Tugir skjala bætast við
Segir þingflokksformaðurinn það einnig áhugavert að enn séu að bætast við skjöl um málið eftir að utanríkismálanefnd afgreiddi tillöguna út úr nefnd. Hún segir tugi skjala síðan þá hafa bæst við frá stjórnvöldum.
„Það eru ekki bara skjölin sem eru í leyniherberginu, heldur hefur innsendum erindum, sem opinber eru á vef Alþingis, fjölgað um nokkra tugi. Við vitum þó ekki neitt hvað er í leyniherberginu og höfum kallað eftir því að þau verði gerð aðgengileg.“
Segir dómsmálaráðherrann fyrrverandi það miður að ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafi ekki kveðið sér til hljóðs í umræðum um þjóðaratkvæðagreiðsluna. Hún segir þó eðlisbreytingu hafa orðið á málinu að undanförnu.
„Núna tala ráðherrarnir um að það sé ekki víst að almenningi verði kynntur sá samningur sem kemur úr aðildarviðræðum kjósi fólk með því. Það fer víst bara eftir því hvort stjórnarflokkarnir fýli samninginn. Það er óboðlegt að ráðherrar komi ekki og geri grein fyrir þessu sjónarmiði fyrir þinginu. Hvað ef þjóðinni hugnast samningur sem Samfylkingunni eða Viðreisn hugnast ekki?“
Ætlar að leyfa umræðunni að eiga sér stað
Þrátt fyrir að Miðflokkurinn telji dagsetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar ekki ákjósanlega er ljóst að stjórnarmeirihlutinn er þeirrar skoðunar að dagsetningunni verði ekki breytt. Mun því vera reynt að ljúka umræðunni í dag.
„Þau klára þessa umræðu auðvitað ekkert án samkomulags við Miðflokkinn,“ segir Sigríður.
Er von á því að slíkt samkomulag náist?
„Ég ætla að leyfa þessari umræðu að eiga sér stað í dag og sjá hvort menn hressist eitthvað og komi inn í þingsal að svara spurningum,“ segir Sigríður.