Stjórnmálafræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur eru sammála um að þjóðin hafi fylkt sér að baki sínum stjórnmálaleiðtogum þegar afstaða var tekin til aðildarviðræðna við Evrópusambandið.
Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur rekur niðurstöðuna helst til þriggja þátta.
„Í fyrsta lagi er í rauninni engin efnahagsleg nauðsyn að ganga í Evrópusambandið fyrir Ísland. Oftast er það nú ástæðan fyrir að umsóknarríki sækir um. Og ekki heldur hvað varðar öryggis- og varnarmálin, það virðist ekki vera bein tenging þar heldur, að það sé einhver þörf á að skoða þennan möguleika,“ segir Vilborg.
„Og svo vitum við að það er misjöfn sýn innan flokkanna á Evrópumálin, en hérna var mjög kosið eftir því hvort þú tilheyrir stjórnarflokki eða stjórnarandstöðuflokki.“
Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðiprófessor emeritus, tekur undir með Vilborgu.
„Í þessum kosningum þá fylktu kjósendur sér að baki sínum foringja og voru mjög einsleitir í sinni afstöðu,“ segir Ólafur.
Ólafur telur ekki að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar muni hafa áhrif á fylgi ríkisstjórnarinnar.
Telur að EES-samningurinn hefði verið felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu
Rætt var við Ólaf og Vilborgu í hádegisfréttum útvarps og talið barst einnig að EES-samningnum.
Vilborg sagði ekki hægt að breyta eðli hans, Ísland hefði eftir sem áður ekki sæti við borðið í Brussel þar sem ákvarðanir eru teknar. Hún sagði þó sjálfsagt að skoða hvort Ísland gæti bætt viðveru sína í Brussel, þó hún yrði aldrei jafnmikil og viðvera Noregs, til að mynda.
Ákveði Norðmenn að ganga í Evrópusambandið verði staða Íslands mjög þröng.
„Bæði ráðamenn og aðrir kunnugir tala um að það væri ógjörningur fyrur okkur að ætla að reka EES-samninginn ein með Liechtenstein,“ segir Vilborg.
„Þá yrðu menn að finna einhverjar aðrar lausnir og við yrðum í mjög þröngri stöðu,“ tekur Ólafur undir með Vilborgu.
„Svo er það þannig núna að allir prísa EES-samninginn. Það var ekki þannig þegar hann var gerður. Hann hefði mjög líklega verið felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu ef hún hefði farið fram.“
Rætt var við Vilborgu og Ólaf í þremur innkomum í hádegisfréttum. Hægt er að hlusta á þær í heild í spilaranum hér að neðan.