Kennarar tæta í sig greiningu Við­skipta­ráðs - Vísir

Kennarar tæta í sig greiningu Við­skipta­ráðs - Vísir

Kennarar tæta í sig greiningu Við­skipta­ráðs - Vísir

Útttekt Viðskiptaráðs birtist í gær en skýrsla ráðuneytisins í síðustu viku líkt og Vísir greindi frá. Ráðið tekur meðal annars saman upp úr skýrslunni skýringarmynd sem sýnir hlutfall þeirra nemenda sem luku framhaldsskóla þremur árum eftir grunnskólagöngu. Efstur er Smáraskóli samkvæmt þeirri mælingu, 96 prósent nemenda útskrifast úr framhaldsskóla þremur árum eftir grunnskólagöngu en Fellaskóli neðstur með 25 prósent hlutfall nemenda.

Foreldrar í Setbergi þurfi ekki að selja hús sín strax

Rýni Viðskiptaráðs á skýrslu ráðuneytisins hefur vakið mikla athygli og hafa kennarar stokkið fram á ritvöllinn vegna hennar. Ragnar Þór Pétursson fyrrverandi formaður Kennarasambands Íslands segir Viðskiptaráð stíga feilspor.

„Á ég að segja ykkur hver er munurinn á Smáraskóla og Setbergsskóla? Þá þarf smá skýringu: Aðeins hluti nemenda útskrifast á nákvæmlega þremur árum. Það er líklegast í bekkjarkerfi, ólíklegra í áfangakerfi og ólíklegast í iðnnámi. Hægt væri að búa til röð út frá námstíma og hún segði nákvæmlega ekkert um skólana annað en að nemendur fara (eðlilega) í alls konar nám eftir grunnskóla. Það skýrir hluta af þessu þrátt fyrir að Viðskiptaráð gangi út frá því að námsval í öllum hverfum sé eins (sem öll sem eitthvað vita sjá strax að er þvæla).“

Smárahverfi og Setberg séu ekki svo ólík hverfi og segir Ragnar ekki flókið hvers vegna annar skóli lúri við botninn á mynd Viðskiptaráðs en hinn slái öll met. Árgangurinn sem um ræðir í Smáraskóla hafi verið óvenjulítill, 25 nemendur í stað 49 árið árið en óvenjustór í Setbergsskóla, 44 nemendur í stað 26 líkt og árið áður.

„Þar sem raunveruleikinn virkar þannig að algengt er að nemendur taki eina eða tvær aukaannir í framhaldsskóla voru hlutfallslega margir að útskrifast með litla hópnum í Smáraskóla og fáir með hópnum úr Setbergsskóla. Víkurskóli og Álftamýrarskóli áttu aldrei séns. Árgangarnir sem eru undir þar voru þeir einu í úrtakinu (68/0 og 30/0). Foreldrar í Setberginu þurfa ekki að setja húsin á sölu alveg strax. Ef þessi tafla er leiðrétt fyrir námsvali og misstórum árgöngum situr ekkert eftir. Og ekki í fyrsta sinn sem eitthvað svona hnoð er birt. Það eru nefnilega ekki bara börnin sem skortir talna- og lesskilning.“

Spyr hver hafi kennt Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur

Einn reynslumesti kennari landsins og fyrrverandi landsliðskona í handbolta Ragnheiður Stephensen sem kennir við Garðaskóla fer hörðum orðum um útttekt Viðskiptaráðs í aðsendri grein á Vísi, undir yfirskriftinni: „Hver kenndi Við­skipta­ráði að rýna í gögn og tölur?“

Hún gerir mynd Viðskiptaráðs þar sem sjá má hlutfall útskrifaðra framhaldsskólanema eftir grunnskólum sérstaklega að umtalsefni. Hún segir myndina hafa flogið um vefinn sem heilagan sannleik en fæstir átti sig á að myndin byggi á meingölluðum tölum.

„Fyrir neðan myndina er texti sem m.a.s. er rangur. En þar stendur að gögnin nái yfir nemendur sem luku grunnskóla á árunum 2016-2024, en líklega á það að vera 2016-2021. Það stendur nefnilega að útskriftatölur nemenda úr framhaldsskóla árið 2024 séu bornar saman við útskriftartölur grunnskólanna 2021 svo líklega er ekki verið að skoða nemendur eftir það. Þannig er svo fengin sú prósenta sem kemur fram á myndinni. Það er sem sagt verið að skoða allan úrskriftarárganginn úr framhaldsskólum árið 2024 óháð því hvað þeir nemendur voru lengi í framhaldsskóla og finna út úr hvaða grunnskólum þeir komu og bera það svo saman við útskriftarárganginn úr þeim skólum árið 2021.“

Ragnheiður segir þessa aðferðafræði ekki standast skoðun. Hún gefi sér að átt hafi verið við nemendur sem luku grunnskóla á árunum 2026 til 2021. Það þýði að þetta séu sex útskriftarár úr grunnskóla, nemendur sem voru að útskrifast úr framhaldsskóla 2024 hafi verið á aldursbilinu 19 til 25 ára á árinu sem þeir útskrifist.

„Það er stærðfræðilega kolrangt að setja þetta fram með þessum hætti. Þú tekur ekki hluta settan saman úr nemendum sem eru að útskrifast á mismunandi árum úr grunnskóla og reiknar það sem hluta af einum ákveðnum útskriftarárgangi og segir að þar með sé búið að reikna hlutfall af þeim árgangi. Það er einfaldlega rangt. Nemendur fá D í einkunn fyrir svona vinnubrögð í stærðfræði, eða á ég frekar á segja 2,0 svo allir skilji.“

Þannig gætu nemendur í Smáraskóla, sem sé með hlutfallið 96 prósent í rýni Viðskiptaráðs, hafa útskrifast á fjórum, fimm og jafnvel sex árum. Samanlagður fjöldi þeirra hafi visslega verið 96 prósent af þeim fjölda sem útskrifaðist 2021 þó enginn hafi mögulega tilheyrt þeim hópi.

„Hversu klikkað er það?“ spyr Ragnheiður. „Eins ef við tökum þann skóla sem fékk lægstu prósentuna, 25% (Fellaskóla) þá er heldur ekkert hægt að fullyrða um þær tölur. Ef nemendafjöldi skólans er um 360 í 1.-10. bekk eins og gervigreindin segir þá má áætla að það séu u.þ.b. 36 nemendur að útskrifast á hverju ári. Þetta er afar lítið þýði og því ekki hægt að alhæfa eitthvað um það út frá einni mælingu sem þar að auki er meingölluð. Það þarf litlar breytur til að skekkja niðurstöður. Óvenju hátt hlutfall nemenda sem taka skólann á fjórum árum sem útskrifuðust 2021 og óvenju hátt hlutfall sem tók skólann á þremur árum sem útskrifuðust 2020 getur t.d. haft mikil áhrif í svona litlu þýði. Það er munur á milli árganga og ef sömu tölur væru teknar saman 1-2 árum seinna þá gætu tölurnar verið allt aðrar án þess að önnur breyting hafi átt sér stað í skólanum.“

Þurfi að tala um það sem máli skipti

Ragnheiður segir að aðalmálið sé að rannsóknarspurningin sé röng. Ef skoða eigi hversu margir nemendur útskrifast á þremur árum þurfi að taka eingöngu þá sem útskrifuðust úr grunnskóla 2021 og skoða hvað margir af þeim en ekki aðrir hafi náð að útskrifast 2024, á þremur árum.

„En útskrifast sem hvað? Það sem enginn spáir í er að það er aðeins verið að tala um útskrift frá bóknámsbraut í þessum meingölluðu gögnum. Hér er ekki verið að skoða þá sem útskrifast með sveinspróf af hinum ýmsu brautum Tækniskólans t.d. Það er eins og iðnnám skipti ekki máli. Hvar værum við ef allir færu aðeins í bóknám? Við þurfum iðnaðarmenn, sjúkraliða, hárgreiðslufólk, hljóðmenn og allar þessar nauðsynlegu stéttir. Allt nám er mikilvægt.“

Í niðurlagi greinar sinnar segist Ragnheiður vilja að fólk fari að tala um það sem máli skiptir, hlusta og framkvæma. Kennarar þurfi almennileg námsgögn og að samfella sé á milli skólastiga, hæfniviðmið séu allt of opin. Ragnheiður bendir auk þess á að efla þurfi kennaramenntun og ná samfélagslegri sátt um það að nám barna skipti máli og sé hluti af fjölskyldulífi.

„Virðing fyrir námi barna hefur því miður farið þverrandi síðustu áratugi í samfélaginu sem er grafalvarlegt. Of stór hópur fólks og fyrirtækja lítur á skóla sem stað sem börn eru geymd á meðan foreldrarnir vinna, frekar en stað þar sem börn stunda mikilvægt nám. Nám barna er orðið eitthvað sem gerist jafn vel pínu að sjálfu sér og helst án þess að það sé mjög tímafrekt eða erfitt. Við þurfum að gera betur og við getum það en þá verðum við að hætta á þessari vegferð sem við erum á í umræðunni og fara að ræða réttu hlutina.“

#greiningu #kennarar #sig #tæta #viðskiptaráðs


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262890280d/kennarar-taeta-i-sig-greiningu-vidskiptarads

📰 Aðrar fréttir

Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
📅 15.10.2026 👁️ 2
Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
Varnarmálaráðuneyti Ástralíu hefur hafið rannsókn á því hvernig falin myndavél rataði í klefa um borð í einu skipa sjóhersins.Ábending um að myndavéli...
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
📅 15.10.2026 👁️ 2
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
Írski rithöfundurinn Sally Rooney segist vera tilneydd til að taka bækur sínar úr sölu í Bretlandi vegna stuðnings hennar við samtökin Palestine Actio...
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
📅 15.10.2026 👁️ 2
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
Katie Zacharia does not appear to be registered to the legal bar in any state where she has lived.
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
📅 15.10.2026 👁️ 2
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
Veðurviðvaranir eru nú allar gular en enn þá er norðan- eða norðvestanhríð í þeim landshlutum þar sem viðvaranir gilda.Á Vestfjörðum er slæmt skyggni ...
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
📅 15.10.2026 👁️ 2
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
Livestreaming the execution of Nidal Hasan "will taint the honor of the military that employs it, and a nation that allows it," 72 former officers sai...
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
📅 15.10.2026 👁️ 2
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti nýverið að bjóða upp á tvær nýjar námsleiðir við skólann. Það verður boðið upp á diplómu- eða meistaranám í ...
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
Selenskí er í opinberri heimsókn í Bretlandi og gaf sér tíma til að mæta í viðtal hjá Piers Morgan. Þar var fjallað um takmarkanirnar á Starlight-tækn...
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
📅 14.10.2026 👁️ 5
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
A working is named animal of the year for hunting out an invasive marine creature, the carpet sea squirt.
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
Vegagerðin setur á óvissustig og tók hún gildi klukkan tíu í kvöld. Óvissustig þýðir að veginum gæti verið lokað með skömmum fyrirvara. Einnig eru Þrö...
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum. Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi á Vestfjörðum, Strönd...
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
Lyfjafyrirtæki þurfa að sækja um markaðsleyfi í öllum ríkjum þar sem til stendur að setja lyf á markað. Mikill fjöldi nýrra sérhæfðra lyfja hefur komi...
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
Breskur maður á fertugsaldri hefur verið handtekinn eftir að hafa fróað sér í lest, meðal annars fyrir framan konur, í samanlagt 13 klukkutíma. Maðuri...
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
📅 14.10.2026 👁️ 5
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
Reform says all of those people filmed by ITV are under investigation having resigned or been suspended.
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
📅 14.10.2026 👁️ 5
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
Gestir á kaffihúsi einu í Kópavogi eru misvel upp aldir en allir jafn velkomnir, hvort sem þeir ganga á tveimur jafnfljótum eða fjórum fótum. Á kaffih...
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
📅 14.10.2026 👁️ 5
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
Art of Play says its staff have been threatened after the singer complained online about how she was treated.
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
Saurora Grace er 32 ára kona frá Manchester í Englandi. Hún starfar sem svokallaður kynlífsstaðgengill eða sex surrogate, einstaklingur sem aðstoðar f...
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
Valhöll hefur um áratugaskeið verið þekkt sem höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins. Alva capital og flokkurinn undirrituðu kaupsamning um húsið í febrúar...
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
„Ég og maðurinn minn erum 1 af 6. Við erum eitt af þeim pörum sem vita manna best að barneignir eru ekki sjálfgefnir lífsviðburðir heldur ferli sem in...
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
Faber, útgefandi Rooney, sagði í yfirlýsingu í dag að vegna lagasetningar í Bretlandi geti Faber ekki greitt Rooney tekjur sem aflað er í Bretlandi fy...
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
Prince, sem hefur verið dyggur stuðningsmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta, rekur nú málaliðafyrirtækið Vectus Global, sem starfar meðal annars á H...
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
📅 14.10.2026 👁️ 4
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
The home secretary said she would not hesitate to impose measures on other countries "refusing to co-operate".
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
Nokkuð kólnar í veðri á höfuðborgarsvæðinu með kvöldinu og í fyrramálið og viðbúið að hitinn verði nálægt frostmarki í efri byggðum. Lögreglan hvetur ...
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
„Jæja, litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ skrifar hann í færs...
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
📅 14.10.2026 👁️ 4
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps Fréttin14. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Commen...
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
📅 14.10.2026 👁️ 4
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
Leikstjórinn Penelope Spheeris gagnrýndi leikkonuna Jennifer Aniston fyrir að hafa, eftir því sem Spheeris heldur fram, gefið henni kynlífstæki í þeim...
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
📅 14.10.2026 👁️ 4
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
„Jæja litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ segir Árni Árnason, ...
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
📅 14.10.2026 👁️ 4
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
Maðurinn sem lést í rússíbanaslysinu í Georgíufylki í fyrradag var nýgenginn í samtök rússíbanaáhugafólks. Samfélagið er í molum og krefst aðgerða til...
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
Andri Þór Guðmundsson, stjórnarformaður Beru móðurfélags Ölgerðarinnar, og fyrrum forstjóri Ölgerðarinnar til tveggja áratuga segir fyrirtækið alltaf ...
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
📅 14.10.2026 👁️ 2
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
Prime Minister Andy Burnham welcomed President Zelensky to Downing Street on Wednesday, as Ukraine's leader looks to shore up his European allies five...
Tekið að flæða að húsum í Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Tekið að flæða að húsum í Vík
Nokkrar líkur eru á að sjór geti flætt yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal á háflóði í kvöld og því gæti þurft að loka honum. G. Pétur Matthíass...
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
Ólíklegt þykir að sjór flæði yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal. Vegagerðin og björgunarsveitir voru viðbúnar því að veginum yrði lokað því öld...
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
Heiðrún Hauksdóttir, einnig þekkt sem Heidrunguide, var stödd í Reynisfjöru fyrr í dag þar sem töluverður öldugangur var. Hún náði þessu myndskeiði þa...
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
📅 14.10.2026 👁️ 4
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
Ukraine says Starlink access has improved but it is still facing speed limits which are disrupting its battlefield "missions".
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
📅 14.10.2026 👁️ 4
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir gríðarlega mikilvægt að markaðir séu opnir og að það sé ekki komið í veg fyrir að ný fyri...
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
Þið hafið kannski heyrt um Ozempic-hár, -píku, -typpi, -andlit og fleira sem rekja má til aukaverkana eða óvæntra afleiðinga þessu vinsæla þyngdarstjó...
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
Fjallað var um það á Vísi í dag að úkraínskir hermenn hafi fundið fyrir takmörkunum sem felast í því að þegar móttökustöðvarnar nái tilteknum hraða sl...
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
Meðal annarra tónlistaratriða voru Herra hnetusmjör, Úlfur Úlfur, Elvar Orri og Steindi og Auddi en þeir síðastnefndu fengu Pétur til liðs við sig í s...
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
„Ekki skiptir maður við bófa! Hvað verður um hátíðarblandið? Hvar er núna gamla (en alls ekki bragðgóða) Sanitas maltið, Thule appelsínið og Vallasdry...
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
Búast má við talsverðri ofankomu sem hefur áhrif á færð og samgöngur á norðanverðu landinu fram á kvöld og inn í nóttina, segir Hera Guðlaugsdóttir ve...
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
📅 14.10.2026 👁️ 4
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
Forseti ASÍ og forsætisráðherra ræddu lærdóminn af kjarasamningunum í ávörpum við setningu þriggja daga þings Alþýðusambandsins í morgun. Báðir frambj...
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
Eigendur gleraugnaverslunar sem barst krafa um bótagreiðslu, vegna notkunar á tónlist í myndbandi á samfélagsmiðli, leggja til að höfundalögum verði b...
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
Þrjú þök fuku af húsum á Siglufirði í veðurofsanum sem gengur nú yfir mestallt landið. Þakið á heimili Karenar Birgisdóttur, er eitt þeirra sem fauk.H...
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
📅 14.10.2026 👁️ 4
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
Nokkuð hættulegar aðstæður mynduðust við Reynisfjöru í dag vegna veðurs og mikillar ölduhæðar, fyrr en spár gerðu ráð fyrir. Landeigendur höfðu virkja...
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
📅 14.10.2026 👁️ 5
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
Bítillinn Paul McCartney er ekki ánægður með hvernig hæð hans er framsett í væntanlegri fjögurra þátta kvikmynd Sam Mendes um Bítlana.„Við vorum allir...
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
📅 14.10.2026 👁️ 5
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir síbrotamanni til 3. nóvember næstkomandi.
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
Sjúkratryggingar Íslands hafa ekki afhent Rótinni aðgang að samningi sínum við SÁÁ líkt og stofnunin átti að gera samkvæmt úrskurði úrskurðarnefndar u...
Airport drop-off charges to be reviewed after sharp increase
📅 14.10.2026 👁️ 4
Airport drop-off charges to be reviewed after sharp increase
Confirming the review, the government said it was "vital to ensure travel remains accessible and that passengers are treated fairly".
Skildu þýfið eftir á vett­vangi í stolnum bíl - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Skildu þýfið eftir á vett­vangi í stolnum bíl - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að eftir smá grennslan hafi komið í ljós að meintir þjófar höfðu brotist inn, s...
Verðbólga í Bandaríkjunum jókst meira en spáð var
📅 14.10.2026 👁️ 4
Verðbólga í Bandaríkjunum jókst meira en spáð var
Verðbólga í Bandaríkjunum jókst meira í september en sérfræðingar höfðu gert ráð fyrir. Hún mældist 3,7%, sem er örlítið meira en þau 3,6% sem spáð ha...
We are behind you and that will not change, PM tells Zelensky
📅 14.10.2026 👁️ 4
We are behind you and that will not change, PM tells Zelensky
The Ukrainian president visited London in an effort to bolster support among European allies following a row with Donald Trump.