Fjármálaráðherra segir lítið hægt að gera til að halda verðbólgu innan viðmiða sem sett voru í síðustu kjarasamningum. Hann segir kaupmáttaraukningu þó hafa verið í samræmi við markmið samningana og vonar að það komi í veg fyrir harðan kjaravetur.
Verðbólga mælist 5,3% í júlí, sem er aukning um 0,1 prósentustig milli mánaða. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir hækkunina mjög litla og það séu helst olíuverðshækkanir sem drífi hana áfram.
„Það sem við sjáum þarna er auðvitað alls ekki það sem við vorum að vonast til að sjá en það sem drífur áfram þessa mælingu er áfram það sama og hefur gerst núna í undanförnum mælingum að þetta eru olíuverðshækkanir sem eru að koma annaðhvort með beinum eða óbeinum hætti inn í verðlag. Undirliggjandi verðbólguþrýstingur á Íslandi, í innlenda hagkerfinu, virðist hins vegar vera að minnka og það í sjálfu sér eru góðar fréttir í þessum tölum,“ segir Daði.
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, sakar ríkisstjórnina um andvaraleysi í aðgerðum gegn verðbólgu. Dagði segist ekki geta tekið undir það.
„Við höfum snúið af þeirri braut sem hefur verið undanfarin ár og beitt ríkisfjármálunum til þess að styðja við lækkun verðbólgu. Það var nauðsynlegt og það munum við halda áfram að gera með hallalausum fjárlögum núna í haust.“
Samkvæmt forsenduákvæði kjarasamninga er heimilt að segja þeim upp ef verðbólga í ágúst mælist yfir 4,7%. Spurður hvort eitthvað sé hægt að gera til að koma í veg fyrir það segir Daði:
„Ég held að það sé mjög ósennilegt að forsenduákvæðið haldi, og nei það er ekki margt sem raunverulega hægt er að gera.
Ég vil samt halda því til haga að þetta ákvæði er sett inn í samningana til þess að tryggja jákvæðan kaupmátt, það er að segja að launahækkanir fylgi a.m.k. verðlagi. Síðan hafa launahækkanir verið miklu meiri heldur en samið var um í samningunum þannig að kaupmáttur hefur þróast með þeim hætti sem að samningarnir gerðu ráð fyrir og það í sjálfu sér ætti að vera jákvætt inn í samtalið í haust.“